Fara í efni

Greinasafn - Greinar

Mars 2020

TRAUSTVEKJANDI FORSETI ASÍ VIÐ RAUÐA BORÐIÐ

TRAUSTVEKJANDI FORSETI ASÍ VIÐ RAUÐA BORÐIÐ

Besta sjónvarpsdagsrá kvöldsins var   Rauða borðið   hjá   Gunnari Smára Egilssyni . Þar var mætt   Drífa Snædal, forseti ASÍ,   sem fór yfir aðkomu verkalýðshreyfingarinnar að efnahagsaðgerðum stjórnvalda. Upphaflega hefði ríkisstjórnin boðað til samráðs og samstarfs með fulltrúum fjármálakerfisins en Drífa kvað verklýðshreyfinguna hafa séð til þess að samráðið næði ...
REYNT AÐ ÞAGGA FRAMTAK SAMTAKA ÁHUGAFÓLKS UM SPILAFÍKN?

REYNT AÐ ÞAGGA FRAMTAK SAMTAKA ÁHUGAFÓLKS UM SPILAFÍKN?

Almenn samstaða virðist vera um að þagga beiðni Samtaka áhugafólks um spilafíkn , um að loka spilakössum og spilasvítum vegna smithættu af völdum kóróna veirunnar. Ríkisstjórn svarar ekki ákallinu, fjölmiðlar horfa framhjá því, sóttvarnalæknir sinnir því ekki, almannavarnir áhugalausar, Háskóli Íslands hundsar ákallið, það gerir líka Rauði kross Íslands, SÁÁ og Slysavarnarfélagið Landsbjörg. MEÐVIRKNI? EÐA VILJA MENN EKKI SJÁ SIÐLEYSIÐ?     https://www.visir.is/g/202023105d/virdingarvert-framtak-i-spilasjuku-samfelagi
SAMNINGANEFND SVEITARFÉLAGA Í ÞAGANRKVÍ ÞEGAR Í STAÐ

SAMNINGANEFND SVEITARFÉLAGA Í ÞAGANRKVÍ ÞEGAR Í STAÐ

Getur ekki einhver reynt að koma þeim skilaboðum til sveitarfélaganna að talsmenn þeirra, sem í dag hafa komið fram í fjölmiðlum og svívirt láglaunafólk, verði hið bráðasta sett í einhvers konar þagnarkví og aðrir fengnir til að ganga frá kjarasamningum við Eflingu. Efling vill ganga frá samningum við sveitarfélögin á sömu  ...
FRAMSÓKN KYNNIR NÝJA TEGUND AF SAMVINNUHUGSJÓN

FRAMSÓKN KYNNIR NÝJA TEGUND AF SAMVINNUHUGSJÓN

Þegar litlu börnin reyna að fela sig setja þau hendurnar fyrir augun og halda að þar með séu þau ósýnileg. Þegar almenningur í heiminum var búinn að sjá í gegnum prógröm Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ... þá var skipt um nafn ...Þegar áform um einkaframkvæmd og vegatolla tóku að mæta andspyrnu hér á landi þá byrjaði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, á því að segja að þetta kæmi ekki til greina ...
BURT MEÐ SPILAVÍTIN - ALLA LEIÐ - ALVEG BURT!

BURT MEÐ SPILAVÍTIN - ALLA LEIÐ - ALVEG BURT!

Vesaldómur rekstraraðila spilakassa og spilavíta á Íslandi ríður ekki við einteyming. Þeir láta sig engu skipta óskir aðstandenda spilafíkla,   Félags áhugafólks um spilafikn   og   Neytendasamtakanna   svo og formanna   ASÍ og VR   um tímabundna lokun spilakassa vegna sýkingarhættu af völdum kórónaveirunnar.   Og ríkisstjórnin þegir þunnu hljóði þótt skorað hafi verið á hana að fyrirskipa lokun. Fjölmiðlar þegja líka flestir – ekki alveg allir. Þó er stöðugt rekið á eftir. Hvað veldur?  Búið er að loka í Las Vegas.   Langt er síðan  ...
HÉR ER SLÓÐIN Á SJÓNVARPSSTREYMIÐ

HÉR ER SLÓÐIN Á SJÓNVARPSSTREYMIÐ

Margir hafa grennslast fyrir um hvar megi nálgast streymið af útsendingu okkar um Kvótannheim frá því síðastliðinn sunnudag. Þá hafði staðið til að Í þættinum síðastliðinn sunnudag komu fram auk mín Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður og Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra- og málmtækninmanna. Þátturinn er hér:  https://kvotannheim.is/  
SPILAVÍTIN Í LAS VEGAS LOKUÐ, OPIN Í REYKJAVÍK

SPILAVÍTIN Í LAS VEGAS LOKUÐ, OPIN Í REYKJAVÍK

Félagar í  Samtökum Áhugafólks um spilafíkn   könnuðu stöðuna í spilavítum á Reykjavíkursvæðinu í dag. Þar var víðast hvar blómstrandi bisniss. Litið var við í spilasölum þar sem Háskóli Íslands stundar rányrkju sína, það er í sölum sem ganga undir þeim smekklegu heitum   Spennistöðin   og   Háspenna   og einnig í sjoppum og stöðum þar sem   Íslandsspil   (sem er dulnefni fyrir   Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Rauða kross Íslands og SÁÁ)   fara sínu fram.  Í ljós kom að Háspenna er búin að  ...
VARAR VIÐ PÓLITÍSKUM EYÐILEGGINGARÖFLUM

VARAR VIÐ PÓLITÍSKUM EYÐILEGGINGARÖFLUM

Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, sýnir veruleg tilþrif á netmðilum í dag þegar hann varar við því sem hann kallar pólitísk “eyðileggingaröfl”. Þetta væri varla í frásögur færandi á þessari heimasíðu væri það ekki fyrir þá sök að versta eyðileggingaraflið er að mati Hauks sá sem stýrir þessari heimsíðu.  Vandi Hauks er hins vegar sá að staðhæfingar hans eru allar ósannar. Og án þess að ég vilji fara að dæmi hans og gefa einkunn fyrir vinnubrögð, birti ég hér grein Hauks og svör mín. Í viðbrögðum við þessum ...  
VERÐTRYGGINGUNA BURT OG 0% VEXTI

VERÐTRYGGINGUNA BURT OG 0% VEXTI

Hvað er hægt að læra af hruninu 2008?  Margt.   Helstu og alvarlegustu mistökin voru þau að á fyrstu stigum skyldi vísitölubinding lána ekki hafa verið tekin úr sambandi í einu vetfangi og nafnvextir jafnframt lækkaðir. Um þetta átti að setja neyðarlög og um þetta á nú að setja neyðarlög. Í  kjölfar hrunsins varð kaupmáttarhrun í verðbólguskoti sem særði almenning og ...
HVER ÆTLAR AÐ STÖÐVA SPILAFÍKILINN VIÐ SUÐURGÖTU?

HVER ÆTLAR AÐ STÖÐVA SPILAFÍKILINN VIÐ SUÐURGÖTU?

Á hádegi í dag (þá var þessi mynd tekin) hafði Háskóli Íslands ekki látið loka spilavítum sem hann rekur undir því tælandi heiti  Háspenna.   Önnur mun heita   Spennistöðin.   Háskólahappdrættið vanvirðir þannig áskorun samtaka Áhugafólks um spilafíkn, Neytendasamtakanna, forseta ASÍ og formanns VR um að loka spilasölum og kössum á vegum happdrættisins tímabundið vegna COVID-19 veirunnar.   Sama gildir um aðra rekstraraðila sem standa að Íslandsspilum, það er Rauða krossinn, Slysavarnarfélagið Landsbjörg og SÁÁ. Þessir aðilar fengu sams konar áskorun. Einhvers staðar mun hafa verið komið upp sprittbrúsum svo ...