Sem betur fer hefur ekki tekist að þagga umræðuna um ofbeldisiðnaðinn. Eins og marga kann að reka minni til hlupu ýmsir upp til handa og fóta þegar ég setti á laggirnar nefnd til að skoða möguleika á því að koma í veg fyrir að klámiðnaðurinn þrengdi sér inn í veröld barna og unglinga eins og nú gerist í sívaxandi mæli.. Andmælendur sögðu að með þessu yrði tjáningarfrelsi (klámiðnaðarins?) skert og skrifaðar voru greinar innanlands og utan um um „frumvarpið" sem ég hefði sett fram, það væri „fasískt" og ég væri „vitskertur".
Á föstudag afhenti ég Hönnu Birnu Kristjánsdóttur lykla að Innanríkisráðuneytinu með ósk um velfarnað í starfi innanríkisráðherra nýrrar ríkisstjórnar.
Óttalegan vesaldóm er að finna í málflutningi nýrrar stjórnarandstöðu. Það er eins og enginn ætli að þora að taka á þessu forréttindaliði sem búið er að koma fyrir að nýju uppi á valdastólunum.
Birtist í DV 24.05.13.. Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna, þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson klifa á því að þeim sé sérstaklega annt um heimilin í landinu.
Í kauphallar- og verðbréfaheimum ríkir gleði þessa dagana. Fólkið sem vildi „Einfaldara Ísland" er að taka við stjórnartaumunum í landinu að nýju; flokkarnir sem skópu aðstæður fyrir mesta efnahagshrun Íslandssögunnar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, eru í þann veginn að koma sér fyrir í Stjórnarráðinu í umboði 51% landsmanna.
Birtist í Morgunblaðinu 21.05.13.. Almenningssamgöngur á Íslandi hafa lengst af verið heldur takmarkaðar og bundnar við þjónustu innan einstakra sveitarfélaga, reyndar örfárra.
Birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 19.05.13.. Þegar ég var við nám í Edinborg í Skotlandi fyrir nokkuð löngu síðan hugsaði ég stundum til þess að í borginni einni byggju fleiri en á öllu Íslandi.