Fara í efni

Greinasafn

Maí 2017

MÆLT MEÐ FUNDI!

Ég fagna því að fá fundinn á laugardag um framtíð Kúrda. Ég verð því miður fjarri góðu gamni því ég verð erlendis.
Kúdar 1

UM FRAMTÍÐ KÚRDA - FUNDUR Í IÐNÓ 3. JÚNÍ KL: 12

Boðið er til fundar 3. júní nk. í Iðnó kl. 12 þar sem fjallað verður um framtíð Kúrda. Ræðumenn eru Havin Guneser, verkfræðingur og þýðandi, sérfróð um stöðu Kúrda, og Ebru Günay, lögfræðingur, sem sat í fangelsi í fimm ár vegna mannréttindabaráttu.
BÍ afhent skýrsla

BLAÐAMANNAFÉAGI ÍSLANDS AFHENT SKÝRLSA IMRALI NEFNDAR

Eins og greint hefur verið frá var ég í sendinefnd sem hélt til Tyrklands 13. febrúar sl. og dvaldi í landinu til 19.

ELDHÚSDAGUR

Stigalausa stjörnufjöld,. stéttin gæfu rúna.. Brynjar átti besta kvöld,. bravó segi núna.. Kári . . . .  

EKKI REIÐ HELDUR LEIÐ

Air Iceland Connect segjast þau nú heita sem áður hétur Flugfélag Íslands! Mikið er þetta leiðinlegt. Félag sem manni hefur þótt vænt um eða alla vega langað til að þykja vænt um, hrindir manni frá sér með þessum hætti og segist vera að gera þetta til að "tengja" betur! Aumingja fólkið! Ég get varla sagt að ég sé reið, miklu frekar leið yfir því stjórnendur þessa félags, sem nánast heyrir til grunnstoðanna, skuli ekki sjá sóma sinn í því að reyna að passa upp á íslenskuna, því eins og þú bendir þá eru þau að reyna það hjá Samtökum atvinnulífsins.. Sunna Sara.

EFTIRPARTÝ

Ömurlegu Íhalds dirrin díi. duglega Kata benti á. Og eintómu bulli í eftirpartýi. Engeyingar sögðu frá.. Pétur Hraunfjörð. . .  . . .                      
MBL  - Logo

STIGGENABB!

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 27/28.05.17.. Við skildum ekki allt sem sagt var í kúrekamyndunum sem sýndar voru í Austurbæjarbíói uppúr miðri öldinni sem leið.

ALLIR AÐ GRÆÐA!

Ósköp er dapurlegt að fylgjast með Costco auglýsingabrellunni og hvernig landinn bregst alltaf eins við, beðið í röðum og fjölmiðlarnir síðan með beinar útsendingar og forsíðufréttir! Allt ókeypis fyrir verslunarkeðjuna.. Ég var að vonast til að vera í útlöndum eða á heiðum uppi til að forðast að þurfa verða vitni af niðurlægingu íslensku hópsálarinnar.
Flugfel -aIC - nota

VAR FLUGFÉLAG ÍSLANDS EKKI Í SA?

Var, segi ég því nú heitir þetta félag Air Iceland Connect. Stjórnendiur Flugfélags Íslands eru annað hvort latir eða eitthvað þaðan af verra.

ÚTVATNAÐUR HAUS

Flugfélag Íslands fékk nýtt heiti. fáránlegt sýnist að mest öllu leyti. úr Íslensku máli. nú í ensku prjáli. Æ voru þeir með hausinn í bleyti.. Pétur Hraunfjörð