Sæll Ögmundur. Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.
Það lifir þjóð í andans orkuríki. sem illa leikin var af þjófasýki,. hún fékk að svamla um í djöfladíki. með drauma sem hún þóttist geta keypt.. En vonir hennar fóru fyrir slikk. því falskir karlar héldu vegleg teiti,. þeir gáfu öllu braski burðug heiti. og betri tíð var sögð á næsta leiti.. En þessir kappar fólki gerðu grikk. og glæstri þjóð þá var í skuldir steypt.
Sæll Ögmundur. Erfitt er að horfa upp á endalausar árásir og níð Evrópubandalagssinna og svokallaðra ´jafnaðarmanna´ gegn Jóni Bjarnasyni fyrir að það eitt að standa eins og maður í lappirnar og krefjast þess að umsóknin inn í Evrópusambandið verði dregin til baka.
Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu.
Það nöturlegasta við skemmtimenn er þegar þeir falla í þá freistni skemmta sér á kostnað annarra. Sú skemmtun getur hæglega snúist upp í skemmtikvöld fyrir skrattann.
Ég las yfirvegaða og rökfasta grein Ögmundar í Morgunblaðinu. Stundum er persónulegur skætingur svar rökþrota manna og því miður varð sú raunin einmitt í þetta skipti.