Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Apríl 2021

1. MAÍ 2021

Hamingjuóskir ég heimsbyggð flyt höldum öll verkalýðsdaginn Eftir kreppu ástand og kórónu smit keyrum við áfram slaginn. ...  Höf. Pétur Hraunfjörð

SUMARIÐ KEMUR

Bráðlega við sumarið sjáum sem lyftir okkur á tá Þá heilsu og heilbrigði fáum og helvítis pestin frá. Fáir bera af ´onum blak Brynjar fór í díið Ætti nú að taka sér tak og minka fylliríið. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

„LÍKAMI KRISTS VAR RÚNSTYKKI ÚR BJÖRNSBAKARÍI”

Á fátæktinni fékk að kenna og faðirinn snortin sari Þá alvaran fór upp að renna úr varð Gunnar Smári. Þá sósíalisminn í sálina rann er samhjálp kynntist drengur Við kapítalisma ei kunni hann enda kallaður alþýðu fengur. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

ÓVÖNDUÐ FRÉTTASTOFA SJÓNVARPS

...  Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja?  Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.   Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa. Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ... Sunna Sara    

Á HVAÐA VEGFERÐ ERUM VIÐ?

Það var illa  til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar? Jóhannes Gr. Jónsson

SJÁLFUMGLAÐUR Í SÓL OG HITA

Brynjar Trump brögðin kann fátt bítur á guttann Á sólarströnd nú situr hann og sendir okkur puttann. Höf. Pétur Hraunfjörð

VIÐREISN ÁLYKTAR OG ÞINGMAÐUR KÆRIR - SIG SJÁLFAN

Að standa í þessu er stöðugt puð, styðjum við Frakka og Belga. Við trúum á okkar evrópska guð, inngöngu í sambandið helga. Að sitja á þingi og sulla með leir, sannleikann móta ég hálfan. Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir, þess vegna kæri mig sjálfan. Evrópu selja áfram völd, engar leiðir góðar. Braska þau á bakvið tjöld, beygja stoðir þjóðar. ... Kári

HÆLIÐ FYRIR ÖSKURAPA:

Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ... Grímur

GLEÐILEGA PÁSKA KÆRU LANDSMENN!

Nú fer páska helgin í hönd hér margir láta sig dreyma Vandamál sjáum víða um lönd verum öll dugleg heima. ... Höf. Pétur Hraunfjörð

SKAMMHLAUP Í HEILABÚI STJÓRNVALDA?

Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni?  Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér. Sunna Sara