Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

2020

AÐ GEFNU TILEFNI

Ráðherra forsætis rökin virði, reglur gilda um frúna. Faðmaði sjálf á Seyðisfirði, en saklaus þykist núna. ... Kári

„HÁTTVIRTUR” RÁÐHERRA?

Lögin brjóta, lítil fórn, líka vín og sukkið. Ráðherra í ríkisstjórn, reyndist hafa drukkið. Kári 

ÚRSÚLA BOTNAR

Komdu blessuð, Katrín hér, kosti þarna góða sé. (Ursula): Bóluefni býð ég þér, og bæt´ykkur í ESB. Kári

ALLIR FÁ SITT

Hátíðin nú gengur í garð grímu jól og pestin Kaupmenn allir fá sinn arð en tekjufallsbætur restin. Tíminn líður traustið fer töluverð fátækt þvingar illa líður mörgum og mér menn telja í kosningar. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

VEL MÆLT FYRIR HÖND ASÍ OG SITTHVAÐ FLEIRA

Drífu vil þakka dugnaðinn dengi því fram í hrósi Hjartahlýu frá henni finn fór á kostum í kastljósi. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.  

JÓLIN BÆTA GEÐ EN EN BRYNJAR SEGIR KÍMNI Á ÚTLEIÐ

Jólin bráðlega bæta geð Þá bökkum útúr kófi   Verum bjartsýn vertu með og hættum grímuþófi. Hátíðin nú gengur í garð grímu jól og pestin Kaupmenn allir fá sinn arð en tekjufallsbætur restin. Lítið gerist lötum hjá Leiðindin allir sjá Lúnu höfði lyfta má Líka mætti fara frá. Höf. Pétur Hraunfjörð.

UMBOÐSMANN VANTAR

Velja Dauðann og verja þann, virðingu þingsins flíka. Á Íslandi vantar umboðsmann, ófæddu barnanna líka. Þannig er talað á þinginu maður, þar eru fáir til varna. Ísland er tilvalinn áfangastaður, ef eyða skal lífi barna. Kári

SÁÁ SLÍTUR SIG FRÁ SPILAKÖSSUNUM

Spilakassi er spillingin ein sparlega ættir að njóta þetta er algjört manna mein marga niður brjóta. Heimilin eiga nú heldur bágt um hörmungarnar því yrki Að vinnu er leitað hátt og lágt og sótt um tekjufallsstyrki. ... Höf. Pétur Hraunfjörð

HVENÆR LES SIGRÍÐUR?

Sífellt meira á móti blæs margir hætta að anda Sigríður líklega orðin læs léttir þó nokkurn vanda. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

,,HERINN BURT‘‘

Herinn sig hafði burt hann er kominn aftur Verður víst um kurt   sá vandræða raftur. Vinstri græn virðast nú vera á undanhaldinu því leiðitöm og liðleg frú er liðhlaupi hjá Íhaldinu. Hörmuleg er andskotans hítin hér borga eigum íhaldsskítinn um þetta yrki lokunarstyrki er ríkistjórnin eitthvað skrítin? ... Höf. Pétur Hraunfjörð.