Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Febrúar 2013

UMHYGGJA FYRIR HELLS ANGELS?

Hvers vegna skyldi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vera að spyrja svona áhyggjufullur um hleranir vegna glæparannsókna? Er það umhyggja fyrir Hells Angels? Eða er það umhyggja fyrir félögum úr Flokknum sem hrasað hafa á hálum siðferðs-ís gróðahyggjunnar? Nú er farið að dæma vegna rannsókna Sérstaks saksóknara og þá vakna til lífsins formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Lögmannafélagsins.

AÐ SKOÐA HÖFUÐSTÓLA Í 5-8 ÁR

Ég spurði um daginn um stefnu VG í skuldamálum heimilanna. Ef til vill vitnaði ég rangt í orð nýkjörins formanns VG og bið þá forláts á því.

ÓHEFT NET!

Sæll, Ögmundur, til að byrja með þá styð eg þig og tel þig eðalmann,en varðandi netið er að óheft segir það sannleikann, netið a a vera heilagt þvi þar er engin ritskoðun af neinu tagi, og án lokunar sjáum við betur vandamalin.. Guðmundur

LEIFTURSÓKN VG GEGN SKULDA-VANDANUM?

Tvívegis á jafnmörgum dögum hef ég heyrt nýjan formann VG lýsa því yfir að flokkurinn ætli að grynnka á húsnæðisskuldum fólks á fimm til átta árum.

VILL BEINA SJÓNUM AÐ OFBELDI

Sæll Ögmundur. Mig langar að tjá mig aðeins um þetta klám frumvarp og spyrja hvort þú viljir skoða einn hlut sem þarfnast einhverrar athygli? Hvað með að vera með 2 týpur af fréttum? Að það sem börn eiga ekki að horfa á verði á rauðri fréttastöð.

ICESAVE ERFITT

Sæll Ögmundur og gleðilegt nýtt ár. Nú gleðjast hægri menn eftir ýmsa „sigra" eins og þeir vilja orða hlutina.

TRAUSTVEKJANDI?

www.vb.is/frettir/80765/ Sorry kallinn minn en Þinn tími er liðinn. Pakkaðu saman dótinu þínu og komdu þér út!Arnar. . Ekki þykir mér þetta vera traustvekjandi, að þora ekki að láta skoða hvaða úrræði bjóðast til að vernda börnin okkar fyrir ofbeldi og þá einnig það fólk sem notað er í framleiðslu ofbeldisefnis.

LÖGREGLAN OG FBI

Sæll Ögmundur.. Mér finnast fráleitar þessar vangaveltur með FBI og aðkomu ráðuneytanna að henni. Hver gaf leyfið í fyrstu og það sama á við um einkatölvu Birgittu alþingiskonu.

S-P-A-N-G-Ó-L

Góð þótti mér grein Sunnu Óskar Logdóttur íMmorgunblaðinu um síðustu helgi. Fyrirsögnin var Pirraði og kynsvelti ráðherrann.