Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

2017

SAMHERJA-STJÓRN?

Í fjölmiðlum hefur komið fram að ríkisstjórnin er með 80% stuðning þjóðarinnar. Þetta er afrek VG. Veita Bjarna Ben., skjól fyrir skattaskjólsávirðingum og þar með uppreisn æru, heiðra Sigríði Andersen fyrir dómararáðningar væntanlega.  Og VG eiga þeir það að þakka Kristján Þór  og Björn Valur að þeir njóta nú vinsælda hjá 80% þjóðarinnar.

JÁ, EN HREINN K ...

Var að lesa bréf Hreins K sem ég skal játa að er nokkuð lunkið nema að þau sem sérstaklega eru beðin um að mæta skyldumætingu á 100 ára afmælisfund Sýkladeildar Landspítalans, væru að vinna fyrir leigunni með því að sækja fundinn og miðla honum til annarra.

YFIRSTÉTTIN Í STUÐI

Ráðstefna kl 15.. Allir aðrir að vinna fyrir leigunni.. mkv. Hreinn K

ERUM LÁTIN KAUPA AUGLÝSINGAR Á BÖRNIN!

Ég vil þakka þér fyrir greinina sem birtist í sunnudagsmogganum varðandi auglýsingar á íþróttabúningum barna og RÚV reyndar líka.. Ég hef lengi pirrað mig á þessu og gert mér, ef mögulegt hefur verið, sérstaka ferð til að kaupa íþróttabúning á börnin þar sem ekki er auglýsing á.

FRJÁLSHYGGJA YFIR MIÐJU

Ýmsir róa á önnur mið,. aðrir stóla á frúna.. Frjálshyggjuna fáið þið,. frá vinstri-hægri núna.. Kári

VERÐA FLEIRI JÓLABÆKUR AUGLÝSTAR Í RÚV?

Ástæða er til að þakka Sjónvarpinu fyrir frábæra fréttaskýringu á ferli Jóhönnu Sigurðardóttur í sjónvarpsþætti í vikunni Hógværð hennar er aðdáunarverð og fagmennska Sjónvarpsins að sama skapi.

SUMIR TAKA POKANN

Félagsmönnum ´ún færði sorg. flestir sáu  hrokann.. Flokkinn bar á frjálshyggjutorg. fáeinir tóku pokann.. Pétur Hraunfjörð . . .  

VEGNA NIÐURSTÖÐU MANNRÉTTINDA-DÓMSTÓLSINS

Nú hefur Mannréttindadómstóllinn dæmt ríkinu í hag í Landsdómsmálinu og er það vel. Landsdómurinn í máli forsætisráðherra hrunstjórnarinnar er mikilvægur það mun sagan sanna.

SPURT OG SVARAÐ UM VENEZUELA

Dyggir lesendur síðunnar bíða enn eftir útskýringu þess sem ,,skammast sín ekki fyrir að vera Sósíalisti" á stöðu mála í Venezuela.

UPPREISN ÆRU

Vinstri/Grænir vilja nú. vinina sína kæru.. Á Íhaldinu hafa trölla trú. og fá því uppreisn æru.. Pétur Hraunfjörð