Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

September 2010

MR. HUMPHREY OG FÉLAGAR

Ágæt og þörf var fyrirspurn Ólafar Nordal um greiningu á því hvers konar kröfur stæðu á bak við nauðungaruppboð frá hruni.

SAMMÁLA

Sammála þér Ögmundur. Þetta var fín ræða hjá Össuri. Mannréttindi og náttúruvernd ættu að vera okkar aðalsmerki á alþjóðavettvangi.

ÁSKORUN

Blessaður og sæll Ögmundur, ég skora hér með á þig til þess að endurskoða ákvörðun vinnumálastofnunar varðandi atvinnuleyfi fyrir Jussanam da Silva með hliðsjón af sérstökum aðstæðum hjá henni.

ÞÖRF Á UPPGJÖRI!

Það gerist ekkert ef ekki fer fram almennt uppgjör í okkar samfélagi. Það getur ekki þessi ríkisstjórn gert það hefur sannað sig.

SETJUM TRAUST OKKAR Á ÞIG

Sæll Ögmundur, . Ég skrifaði þér tölvupóst þar sem ég hvatti þig til að koma í veg fyrir það níðingsverk sem virðist vera í uppsiglingu gegn Jussanam da Silva.

ALLT UPP Á BORÐIÐ

Sæll Ögmundur.. Til hamingju með embættið. Ég hef mikla trú á þér í þessu hlutverki og hef aldrei orðið ráðherraskiptum jafn fegin.

HVATNING

Sæll Ögmundur, Ég hvet þig til þess að endurskoða mál Jussanam de Silva og veita henni landvistarleyfi, og jafnframt að sjá til þess að vinnubrögð Útlendingastofnunnar verði endurskoðuð.

VG TAKI SÉR TAK

Er nú ekki mál að linni. Eigum við Vestmanneyingar nú að borga meira fyrir að ferðast eftir þjóðvegi en aðrir landsmenn? Hvernig væri að taka peningana sem fara í ESB viðræður sem gagnast engum og verða felldar af þjóðinni?Við mótmælum þessum hækkunum ef af verður því reynslan er sú að það sem einu sinni hefur verið hækkað lækkar ekki.

SÉRFRÆÐINGAR OG LÝÐRÆÐI

Í ágætri grein í TMM segir Solla að fjórir hópar háskólamanna hefðu átt að vita betur fyrir hrun: lögfræðingar, viðskiptafræðingar, hagfræðingar og endurskoðendur.

FORSETINN BOÐAR NÝJA ÚTRÁS

Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Forsetinn vill að við gerum aðra tilraun til að hösla okkur völl í Kína, í ríki frelsis og mannréttinda.