Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Janúar 2018

ER VERKALÝÐS-HREYFINGIN AÐ VAKNA?

Mér sýnist að þau sem héldu að verkalýðshreyfingin hefði sungið sitt síðasta þurfi að endurskoða þá trú - vonandi.

LIFANDI FLOKKUR EN DAUÐUR ÞÓ

Lifandi dauður líklega er. um léleg heitin vænum. Og trúlega til fjandans fer. flest hjá Vinstri/grænum.. . Vandræði Kötu versna brátt. verji ´ún áfram Sigríði. Nú lögbrjótinn frúin lofar dátt. og ver hana fyrir níði.. . . Nú lögfræðingar líða skort. og læknar illa haldnir. Sjálfsagt reynir sitt á hvort. sjúkir eða baldnir.. Pétur Hraunfjörð . . .  

LIFANDI DAUÐAN FLOKK STYÐ ÉG EKKI

Upphrópanir eftir flokksráðsfund Vinstri grænna eru að Vinda hafi lægt innan VG. Þannig sagði mbl.is frá. Flokkurinn telur sig sem sagt vera kominn í skjól og logn og sæll með sitt hlutskipti í lífinu.

SÖGULEGIR SIGRAR EÐA HVAÐ?

Því er slegið upp að atvinnuveganefnd Alþingis verði nú í fyrsta skipti stýrt af konum. Af þessu stærir formaðurinn sig, Lilja Rafney Mgnúsdóttir.

VALHÖLL OG BORGARSTJÓRN

Baráttan er byrjuð þar. og bjartsýnir eygja von.. Útsvars-stjarnan valin var. Vilhjálmur Bjarnason.. . Eyþór Arnalds ætlar sér. oddvitasætið þarna.. En Villi víst með sigur fer. enda vinur Bjarna.. Pétur Hraunfjörð

SKORIÐ NIÐUR HJÁ LANDHELGIS-GÆSLUNNI Í GÓÐÆRI!

Eftir hrun voru varðskip leigð til útlanda til að mæta óhjákvæmilegum niðurskurði. Það var ekki gott en menn féllust á að það væri óhjákvæmilegt.

ÁBYRGÐ Í VERKI?

Formaður flokks sem segist vera vinstri flokkur og er kominn í samstjórn með Sjálfstæðisflokknum og er forsætisráðherra í þokkabót, segir að mál málanna sé að gera vinnumarkaðinn ábyrgan.

UM HVAÐ SNÝST DÓMARAMÁLIÐ?

Um hvað snúast stjórnmálin á Íslandi? Veit það einhver? Stjórnarandstaðan vill að Sigríður dómsmálaráherra segi af sér, finnst það mikilvægast af öllu! En hvað gerði hún rangt? Var það ekki svokölluð matsnefnd sem klúðraði málum? Hvernig væri að fjölmiðlar reyndu að skýra þetta dómaramál? Það er orðið augljóst í mínum huga að málið er ekki eins svart hvítt og margir vilja vera láta - er ég þó enginn aðdáandi dómsmálaráðherrans né Sjálfstæðisflokksins. . Sunna Sara

ENGIN ÁBYRGÐ

Ef landinn brýtur löginn hér. leiddur er til sakar. En Sigríður enga ábyrgð ber. ef skaða mörgum bakar. Pétur Hraunfjörð

SAMTRYGGING Á ALÞINGI

Það er rétt sem þú segir Ögmundur að alltaf er það mest sannfærandi þegar menn byrja á sjálfum sér! Það má til sanns vegar færa með ríkisstjórnina að hún geri þetta en með undarlegum og öfugsnúnum áherslum.