VEISTU HVAÐ GERÐIST Í RÚANDA?
23.05.2020
Birtist í helgarblaði Morgunblasins 23/24.05.20. Ekki vissi ég það. Ég heyrði náttúrlega eins og allir aðrir fréttir af morðöldu í Rúanda fyrir rúmum aldarfjórðungi. Talað var um þjóðarmorð, hvorki meira né minna, og að stjórnvöld væru ábyrg. Svo heyrðum við að settur hefði verið á fót alþjóðlegur glæpadómstóll til að rétta yfir þeim sem taldir voru bera þyngstu sökina. Allt var þetta skilmerkilega tíundað í fjölmiðlum heimsins. Samt fór þetta fyrir ofan garð og neðan hjá okkur flestum. Ég gerði mér grein fyrir því þegar ég las bókina Litla land sem ...