Fara í efni

Greinasafn

2011

ÞÖKK

Ögmundur : Haf þökk fyrir góða frammistöðu í Grímsstaðamálinu.. Magnús Marísson

LAND ER MEIRA EN EIGN

Þakka þér fyrir Ögmundur! Engin ein kynslóð hefur rétt til að selja landið fyrir stundargróða. Okkur ber að gæta þessa lands og skila því áfram til komandi kynslóða.

STUNGIN TÓLG

Ögmundur, takk fyrir framsýna ákvörðun. Undarlegt að fólki þyki það vera stungin tólg ef ráðherra fer að lögum.

HVERGI HVIKA

Hafðu hugheilar þakkir fyrir ákvörðun þína, Ögmundur. Önnur niðurstaða kom ekki til greina en þurfti bæði kjark og heilindi við sannfæringu sína til að hvika hvergi.. Jón Örn Marínósson.

AÐ SELJA Í BÚTUM

Takk fyrir að selja ekki landið í bútum.. Sigurður Ólafsson

ALLIR HUGSANDI MENN

Viturleg ákvörðun. Eins og vænta mátti af þér, Ögmundur, tókstu viturlega ákvörðun eftir ítarlega athugun á málinu, að hvorki væri leyfilegt né skynsamlegt að selja útlendingi 300 ferkílómetra lands.

FYRIR OPNUM TJÖLDUM

Það er gott að sjá framkvæmdavaldið vinna vel og faglega, fyrir opnum tjöldum þar sem fulltrúar löggjafarvaldsins vilja hafa skýr lagaákvæði að engu.

Í HEIÐURSFLOKK!

Heill og sæll Ögmundur. Nú verð ég að segja það sama og áður hefur verið sagt: Loksins, loksins. Já, loksins hefur íslenskur ráðherra staðið í báða fætur gegn erlendri ásókn í landið okkar, með gylliboðum um gull og græna skóga.

GOTT!

Vel af sér vikið, Ögmundur. Það er víst ekki allt undir sólinni falt fyrir fé. Jónas Knútsson.

HEFUR SAMFYLKINGIN EKKI FYLGST MEÐ?

Sæll Ögmundur.. Ég vildi aðeins lýsa einlægum stuðningi mínum við þig varðandi ákvörðun þína og ráðuneytis þíns að selja ekki þessu kínverska hlutfélagi og aðaleiganda þess, en þar að baki er auðvitað kínverska ríkið, landið að Grímsstöðum.