Fara í efni

Í HEIÐURSFLOKK!

Heill og sæll Ögmundur.
Nú verð ég að segja það sama og áður hefur verið sagt: Loksins, loksins. Já, loksins hefur íslenskur ráðherra staðið í báða fætur gegn erlendri ásókn í landið okkar, með gylliboðum um gull og græna skóga. Auðvitað er það dálítið skrýtið að þakka fyrir að farið sé að lögum. En svo oft fram að þessu hafa jafnvel landslög verið brotin til að þóknast erlendu valdi. Já, erlendu auðvaldi. Hvað ef þessum Kínverja hefði verið seldir þessir 300 ferkílómetrar af landinu okkar? Hefði þá verið hægt að neita þeim næstu sem homið hefðu í sömu erindum? Auðvitað ekki. Við vitum að þú hefur þurft í þessu máli að berjast við landssölumenn innan ríkisstjórnarinnar. Þess vegna segi ég fyrir mig og marga aðra: Hafðu þökk fyrir þessi úrslit. Að þeim fengnum,leyfi ég mér að setja þig í heiðursflokk Einars Þverægings, með nafnbótinni ÞVERÆGINGUR. Lifðu heill
Jóhann B. Sveinbjörnsson