Fara í efni

LAND ER MEIRA EN EIGN

Þakka þér fyrir Ögmundur! Engin ein kynslóð hefur rétt til að selja landið fyrir stundargróða. Okkur ber að gæta þessa lands og skila því áfram til komandi kynslóða. Eins og ríki óðalseigandinn segir í breskum framhaldsþáttum sem nú eru sýndir á RUV "I alone am not the owner of Downton - only the custodian for generations to come". Enn og aftur kærar þakkir fyrir að skilja að land er meira en eign.
Kær kveðja,
Margrét