Á kosningaskrifstofum VG í Kraganum hefur verið meira líf en í flestum kosningum fram til þessa. Þetta er mat „gamalla hunda" sem lengi hafa fylgst með kosningabaráttunni.
Takk fyrir þarfa grein. Allt upp á borðið já! Væri ekki hægt að fá hjálp rannsóknarblaðamanna og kvenna erlendra og innlendra til að svara þessum spurningum sem þú spyrð í lok greinar?: Hverjir eru Magma Energy? Hverjir eiga Suðurorku? Hver á vatnsveituna í Vestmannaeyjum, hver ráðstafar heita vatninu á Reykjanesi næstu 130 árin? Hverjir eru bakhjarlarnir, hver er kennitalan? . Oddný Eir Ævarsdóttir.
Flestir sem ég þekki telja Lilju Mósesdóttur hafa tjáð sig af viti, skýrleik og rökfestu um HS-málin. En þessi orð Lilju fá ekki háa einkunn hjá forsætisráðherranum ef marka má hvað er haft eftir henni á rúv-vefnum.(http://www.ruv.is/frett/thingmenn-vg-beri-ekki-deilur-a-torg ).
Eitt af mikilvægum skrefum til hagræðis og niðurskurðar gæti verið að sameina endanlega yfirstjórn ASÍ og SA. Fáráðlegt er að reka tvær yfirstjórnir yfir tveimur samtökum, þegar ástarsamband þeirra yfirstígur alla venjulega rómantík innan lokaðra skápa. . Sameiginleg gildi atvinnurekenda og verkamanna voru fyrsti félagsgrundvöllur verkafólks sem fljótlega villtist þó til sjálfstæðrar hagsmunabaráttu.