Í dag klukkan 16 verður efnt til fundar í Iðnó í Reykjavík vegna grimmdarverkanna á Gaza. Það er mikilvægt að fólk sýni samstöðu með fórnarlömbunum og þá jafnframt og kannski fyrst og fremst, andstöðu við glórulaust ofbeldið.
Það er ömurlegt að sjá til ríkisstjórnarinnar núna sem endranær. Í kjölfar stórrar kollsteypu frjálshyggjunar á Íslandi er haldið áfram að einkavæða - starfsemi St.
Guðlaugur Þór þórðarson, sem starfar í umboði Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar, hefur sætt mikilli gagnrýni í þjóðfélaginu að undanförnu fyrir að innleiða ný gjöld og álögur á sjúklinga og fyrir markvissar tilraunir til að einkavæða heilbrigðisþjónustuna.
Birtist á smugan.is 08.01.09.. Nú er myndin að skýrast. Annars vegar höfum við ríkisstjórn sem lyppast niður í samningum við erlenda lánadrottna og peningamenn en sýnir „einurð" í aðför sinni að sjúkum og veikum.
Sjónvarpið á lof skilið fyrir að sýna viðtal við norskan lækni starfandi á Gaza ströndinni. Myndir og frásagnir læknisins færa okkur heim sanninn um hve hrikalega stríðsglæpi Ísraelar eru að fremja á svæðinu.
Sæll Ögmundur..... Almenningur hefur stanslaust farið fram á það við stjórnvöld að þau hefðu hendur í hári fjárglæframannanna sem urðu valdir að efnahaghruni Íslensku þjóðarinnar. Rannsaki aðkomu þeirra að glæpunum og geri þá upp sem sekir dæmast.