Takk fyrir að heyra og sjá hvað er að gerast í landinu, það þarf að virkja restina af flokknum til hins sama ef þið eigið ekki að glata trúverðugleikanum.
Gleðilegt árið Ögmundur. Takk fyrir að vera þú og passaðu þig á myrkrinu eins og Jónas segir. Listamenn eiga ekki að þvælast fyrir alvöru fólki á alvörutímum sem þessum.
Það er heldur dapurlegt að lesa ummæli forsætisráðherra um hvernig komið sé fyrir þjóðinni á hans vakt og sérmenntaður hagfræðingur í þokkabót og ekkert minntist hann á að hann væri á förum úr ríkisstjórn.
Í dag - sunnudag - klukkan 15 gangast fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök fyrir mótmælafundi í Háskólabíói undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA.
Engum málsmetandi hagfræðing blandast hugur um að mörg kreppuár eru framundan í hagkerfi Vesturlanda. Hrun nýfrjálshyggjunar hefur skapað ráðvillu um tíma.. Á Íslandi er ekkert sem gefur tilefni til annars en að reikna með samdráttarskeiði næstu 5 ár a.m.k.
Viðskiptablaðið hefur sýnt einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar talsverðan áhuga um skeið. Hrun fjármálakerfisins og þar með frjálshyggjunnar virðist ekki hafa haft mikil áhrif á afstöðu blaðsins og er ekki annað að sjá en ritstjórninni þyki það, eftir hrun sem áður, vera keppikefli að koma heilbrigðiskerfinu í hendur fjármálamanna.
Ágætu félagar.. Eftir lestur MBL í dag 17.01 og umræður á Norðurlöndunum eða hræðslu um að Noregur dragist nauðugur með inn í ESB ef við förum þangað inn beini ég þeirri málaleitan til þingmanna VG að þeir beini áhrifum sínum til Norska Stórþingsins um að senda hingað þingmannanefnd með umboð til að bjóða okkur að taka strax upp Norska krónu með Norska seðlabankann sem bakland og aðlaga okkar stjórnarskrá að þeirra og ef til vill fleiri laga.