Það ætlar að taka tíma sinn að segja skilið við menningu ársins 2007 þegar ójöfnuðurinn náði hámarki. Það reynist mörgum erfitt að rifja upp að fyrr á árum var samstaða um ákveðinn jöfnuð í samfélaginu.
Plan Breta og AGS er einfalt: . 1) Íslendingar skrifa undir ábyrgð að upphæð ca. 700 milljarðar króna . 2) Íslendingar taka lán að upphæð 700 milljarðar króna hjá IMF . 3) Lánið sem er geymt í Washington/London, er fryst, þar til við höfum staðið við ábyrgðina.
Fyrir nokkru sendi Jón Lárusson mér bréf með þýðingu Egils H. Lárussonar á lýsingu Leos Tolstoys á skuldaánauð íbúa á Fidji-eyjum í Kyrrahafi og samskiptum þeirra við nýlenduveldi.
Sæll.. Ég hef verið að velta fyrir mér þessum tilboðum Magma Energy í orkufyrirtæki hér á landi. Allt í þessu máli minnir mann á aðvaranir sem heyrðust þegar að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom hér inn í kjölfar hrunsins.
Sæll Ögmundur.. Afhverju er ekki krafan um endurnýjun á vísitölutenginu launa til umræðu á þingi og hjá stéttarfélögunum í landinu? Ég er viss um að vísitölu tenging lána okkar yrði fljót að hverfa ef laun ættu að njóta sömu hækkana.
Kæri Ögmundur..... Það eru margir góðir pistlar lesenda á vefsíðunni þinni í dag og það kemur fyllilega í ljós að fólk virðir þig af persónulegum verðleikum þínum sem íslensks stjórnmálamanns sem hefur hagsmuni íslensku þjóðarinnar og föðurlandsins ofar öllu! Þetta verður að skilja og virða og gleyma aldrei.
Hugsið um þetta og hugsið um Icesave ... http://larahanna.blog.is/users/3b/larahanna/files/framti_ly_rae_is_090823_jon_lafsson_um_fjolmi_la.wma Takið síðan undir með okkur á www.kjosa.is.. Með kveðju,. Hjörtur Hjartarson.