Fara í efni

Greinasafn

Október 2008

ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN FYRIRSKIPAR VAXTAHÆKKUN - RÍKISSTJÓRNIN HLÝÐIR - GLÆPSAMLEGT GLAPRÆÐI

ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN FYRIRSKIPAR VAXTAHÆKKUN - RÍKISSTJÓRNIN HLÝÐIR - GLÆPSAMLEGT GLAPRÆÐI

Hækkun stýrivaxta upp í áður óþekktar hæðir - 18% - mun strax smita inn í allt lánakerfið - hafa áhrif á yfirdráttarlán og dráttarvexti.
OPIÐ FUNDARBOÐ TIL RÁÐAMANNA ÞJÓÐARINNAR

OPIÐ FUNDARBOÐ TIL RÁÐAMANNA ÞJÓÐARINNAR

Í kvöld klukkan 20 gangast tveir einstaklingar, þeir Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og Davíð Á Stefánsson, bókmenntafræðingur, fyrir opnum fundi í Iðnó í Reykjavík.
ÞAÐ ER ÓSATT AÐ VIÐ BERUM ÖLL SÖK

ÞAÐ ER ÓSATT AÐ VIÐ BERUM ÖLL SÖK

Ráðandi öfl í þjóðfélaginu reyna nú að slá skjaldborg um valdakerfið í landinu. Nú má ekki tala um sökudólga og sem allra minnst um það sem farið hefur úrskeiðis.

ALÞINGIS-KOSNINGAR SEM FYRST

Sæll Ögmundur. Hvernig er hægt að láta það gerast að það verði boðaðar þingkosnigar sem fyrst? Finnst þér VG tilbúið í þann slag að það verði boðaðar þingkosnigar fljótlega? Kær kveðja þinn kjósandi og VG félagi, . Ásdís. . Sæl Ásdís.. Krafan um kosningar er að rísa.

ORÐIÐ DIMMT

Sæll Ögmundur. Ein þunglyndisleg: . . Nú er orðið nokkuð dimmt . nú er snjór að falla.. Guð ég vona að getum skrimt . og gildi fyrir alla.. . Steingrímur Sigfússon.
GEIR OG INGIBJÖRG BRUGÐUST

GEIR OG INGIBJÖRG BRUGÐUST

Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hafa verið uppteknir við það í fjölmiðlum að undanförnu að finna leiðir til að gera sem minnst úr pólitískri ábyrgð á þjóðarþrengingum okkar Íslendinga.
INGIBJÖRG OG GEIR BRUGÐUST

INGIBJÖRG OG GEIR BRUGÐUST

Er ekki rétt að við förum að beina sjónum okkar að þeim sem bera hina pólitísku ábyrgð á efnahagshruninu - mestu óförum íslensku þjóðarinnar í manna minnum? Að þeim sem skópu lögin, klöppuðu upp stemninguna, mærðu ruglið, voru meðvirk í braskinu og beinlínis blekktu þjóðina? . Rauða spjaldið hunsað . . Ekki svo að skilja að ábyrgð stjórnenda bankanna og fjástingargamblaranna sjálfra eigi að liggja á milli hluta.

JAFNRÉTTISLÖG BROTIN Á DEGI HVERJUM

Sæll Ögmundur,. Hún Harpa ritaði á heimasíðuna þína um karla og konur í valdastöðum og ég er að vissu marki sammála henni.

AF HVORU KYNI?

Sæll Ögmundur,. Ég hef frá fyrstu tíð tekið þátt í jafnréttisbaráttunni, en á mínu heimili hefur kvennabarátta alltaf verið hluti af stéttarbaráttunni. . Að sjálfsögðu eiga konur að hafa sömu tækifæri og karlar á öllum sviðum þjóðfélagsins en ég get ekki séð að samfélagið sé eitthvað betur sett þótt konur gegni ákveðnum valdastöðum í samfélaginu eða stjórni fyrirtækjum.. Það er að mínu mati mikilvægara að rýna í skoðanir fólks en kynferði.  . Er það styrkur fyrir jafnréttisbaráttuna að Valgerður Sverrisdóttir eða Margrét Thatcher hafi gegnt valdastöðum?Hverju breytir það að Ingibjörg Sólrún er kona? Ég er jafn ósátt við skoðanir hennar og væri hún karl.. Í pólitísku tilliti á ég ekkert sameiginlegt með Ástu Möller, Ingibjörgu Sólrúnu, eða Valgerði Sverrisdóttur frekar en þú með Geir Haarde, Davíð Oddsyni eða Bjarna Benediktssyni.. Ég er ekki þeirrar skoðunar að þótt við konurnar höfum ekki haft sömu tækifæri og þið karlarnir til þess að setja mark okkar á valdakerfi og viðskiptalíf landsins á undanförnum árum séum við þar með betur til þess fallnar að takast á við þau verkefni sem nú liggja fyrir. . Ég skil  ekki það kall sem heyrist nú úr öllum áttum um að "nú sé röðin komin að konunum"!. Þess vegna skil ég heldur ekki hvernig það má vera að nýir stjórnendur Glitnis og Landsbanka skuli taldar yfir gagnrýni hafnar og að því er virðist sjáfvirkt hæfar til sinna starfa vegna þess að þær eru konur. . Höfum við ekkert lært?. Nú þarf að spyrja:. Hvert var hlutverk þessara stjórnenda í gömlu bönkunum? . Af hverju fáum við ekki að vita hvað þær hafa í laun?. Er það rétt að Elín Sigfúsdóttir sé einn af hugmyndasmiðunum á bakvið Icesave? . Það er enginn aðili að gamla valdaaðlinum, hvorki í viðskiptum né pólitík, yfir gagnrýni hafinn!. Farsæl framtíð Íslands mun ekki byggjast á því hvort það verða konur eða karlar sem stjórna.

ALAN GREENSPAN - MILTON FRIEDMAN -GEORG SOROS

Kæri Ögmundur.... Ekki alls fyrir löngu senti ég þér lesenda bréf um að ég hafi horft á og hlustað á viðræðu við Georg Soros háprest auðvaldsins og að hann hafi sagt eftirfarandi: . . * Að það væri númer eitt að þjóðir hafi stjórnvöld sem trúa á stjórnskipanina og stjórni samkvæmt því.. * Að það væri lífsnauðsynlegt að öll hegðun og þá hegðun fjármálastofnana og fyrirtækja, þar með banka, verði samkvæmt nákvæmum og góðum lögum og reglum og að gott eftirlit tryggi að farið sé eftir þeim.   . * Georg Soros sagði að á tímum Regans forseta Bandaríkjanna og Margrétar Thatcher forsætisráðherra Bretlands, hafi fólk tekið alvarlega trúarjátninguna eða hugdettuna um að í frjálsu markaðskerfi, mundi markaðurinn leiðrétta sig sjálfur, sjálfkrafa, sem er bölvuð della og ein ástæðan fyrir núverandi fjárhagsvandamálum!. * Hann sagði ennfremur að hann teldi að vald dollarans sem hefur verið notaður sem hálfgerður alþjóða gjaldmiðill þar með að gas og olía væri versluð með honum, hafi skaðast svo við hrun kapítalismans, að þjóðir munu hætta að nota hann, "sem alþjóða gjaldmiðil".