Þórólfur Mattíasson er afsprengi þeirrar hugmyndafræði að öllu sé til þess fórnandi að ganga inn í ESB. Íslendingar þurfa uppgjör, út með spillinguna, stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá.
Í gær, 11. febrúar, voru tuttugu ár liðin frá því Nelson Mandela, frelsishetja svartra í Suður-Afríku , var leystur úr haldi eftir tuttugu og fjögurra ára fangelsisvist.
Nýlega gagnrýndi ég Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, fyrir að fara með það sem ég taldi staðlausa stafi - meira en það, beinlínis að tala málstað Íslands niður - í greinarskrifum í Noregi í sama mund og biðlað var til Norðmanna af Íslands hálfu að rjúfa umsátursmúrinn um Ísland og opna lánalínur án skilyrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins.
Erum við eitt, Ögmundur, þú og ég? Allavega gæti maður haldið það þegar maður les skrif hins hámenntaða prófessors, Þórólfs Matthíassonar þar sem hann lætur að því liggja að þú hafir skrifað bréf sem ég skrifaði og sendi inn á síðuna þína undir eigin nafni.
Sæll Ögmundur.. Það er svo gaman að háskólasamfélaginu. Frá því forseti Íslands bjó til efnislegt vald úr afstrakt rétti þjóðarinnar hafa félagsvísindamenn, heimspekingar, lögfræðingar og stjórnmálafræðingar keppst við að útskýra fyrir okkur dauðlegum muninn á fulltrúalýðræði, þingræði og misskilningi forsetans.
Eiríkur Jónsson, skrifar mér ( þó ekki í krafti embættis síns sem formaður Kennarasambands Íslands) og fer fram á það við mig að ég reyni mig við samanburð á Icesave skuldum Landsbankans annars vegar og afleiðingum „gjaldþrots" Seðlabankans hins vegar.
Sæll Ögmundur.. Ég hef skrifað þér nokkrum sinnum tölvupóst, en aldrei sent hann til heimasíðu þinnar. Ég hef fjallað um skoðun mína á ICESAVE og aðkomu þína að því máli.