Það er sagt að landsfundir S - flokkanna hafi tekist vel; þeir voru áreiðanlega óvenjuvelheppnaðar leiksýningar. Enda var það óvenjuöflug leikarafjölskylda sem stýrði þeim með glæsibrag, börn Þórhildar Þorleifsdóttur og Arnars Jónssonar stýrðu fundunum.
Sæll Ögmundur. Nokkur orð um kosningafundinn við Lækinn okkar hér í Hafnarfirði. Að loknum kosningum 1991 tók Alþýðuflokkurinn, síðar Alþýðuflokkurinn – Jafnaðarmannaflokkur Íslands og síðast Samfylking, að sér að verða stuðningsflokkur Sjálfstæðisflokksins.
Það er í raun ótrúlegt hve ráðherrar leggjast lágt í því að koma sér á framfæri. Síðasta dæmið er frá því gær, þar sem Jónína Bartmarz er stödd á strandstað Wilson Muuga, þar sem næstum má halda að þar hafi hún haft forystu um björgun skipsins.Þessu var því miður þveröfugt farið, pappírsdýrin í umhverfisráðuneyti Jónínu voru búin að þvæla málið fram og til baka.
Á sumardaginn fyrsta fer ég jafnan í skátamessu í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Mér finnst þetta tilheyra sumardeginum fyrsta og jafnframt geri ég þetta í minningu föður míns Jónasar B.
Margt er gott í ályktunum landsfundar Sjálfstæðisflokksins, einnig um velferðarmál, en þar birtast líka hrikalegar hótanir um grundvallarbreytingar á velferðarkerfinu. Dæmi:1. "Landsfundurinn vill nýta kosti fjölbreyttra rekstrarforma á sem flestum sviðum og tryggja þannig hagkvæma nýtingu opinbers fjármagns." Hér er semsé lögð áhersla á einkarekstur í heilbrigðiskerfinu; tvöfalt kerfi.2.
Í dag var birt á Stöð 2 skoðanakönnum úr Suðvestur-kjördæmi, Kraganum svokallaða. Samkvæmt könnuninni fengi Vinstrihreyfingin grænt framboð 17,4% atkvæða og tvö þingsæti í kjördæminu.
Nú hefur forysta Sjálfstæðisflokksins verið endurkjörin með rússneskri kosningu, rétt eins og oftast áður. Spurning hvort Geir Haarde hafi farið af landsfundinum heim með fegurstu stelpunni, skal ósagt látið.Frá því eg byrjaði að fylgjast gjörla með stjórnmálum fyrir um 4 áratugum þá hefur mér alltaf fundist að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafi yfirleitt reynt að forðast að taka afstöðu í nokkru deilumáli sem upp hefur komið í íslensku samfélagi.