Fara í efni

Greinasafn

2021

Í SÍMANUM

Í símtalinu sagði Arna sinni meiningu frá Hún vildi hvítþvo Bjarna af sakaskrá. Eftir framsal á fiskveiðikvóta fóru sægreifar lífsins að njóta kvóti var efldur á örfáar hendur og allir samþykktu leikinn ljóta. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

STRÍÐSLOK OG ENDURREISN Í SÝRLANDI - EÐA EKKI?

Sýrlandsstríðið varð að nýju dálítið fréttaefni í íslenskum fjölmiðlum um daginn þegar Bandaríski herinn kastaði sprengjum á landamærasvæðið milli Sýrlands og Írak 25. febrúar að skipun Joe Bidens. Heima fyrir fékk forsetinn reyndar dálitla gagnrýni fyrir að hefja loftárásir án þess að bera undir þingið. Einn forsetaframbjóðandi Demókrata gekk þó mun lengra í gagnrýni og fordæmdi þá stefnu sem málefni Sýrlands ætla að taka hjá nýjum húsbændum  í Hvíta húsinu. Þetta er Tulsi Gabbard sem nú er nýhætt á þingi. Hún lýsir yfir: ...

SÆSTRENGIR OG SAMTENGING ÍSLANDS VIÐ INNRI ORKUMARKAÐ ESB

Þegar líður að kosningum til Alþingis er rétt að rifja upp hvað ákveðnir þingmenn sögðu í umræðum um orkupakka þrjú og mögulega lagningu sæstrengs til Íslands. Þeir sem studdu orkupakkann fullyrtu m.a. að engin tengsl væru á milli pakkans og mögulegrar lagningar sæstrengs. Sama fólk fullyrti og að pakkinn hefði engar breytingar í för með sér og skipti engu máli.  Annað hefur heldur betur komið á daginn og annað á eftir að koma í ljós. Þar er af ýmsu að taka ...
ERUM VIÐ Á LEIÐ Í BAÐSTOFUNA AFTUR?

ERUM VIÐ Á LEIÐ Í BAÐSTOFUNA AFTUR?

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 27/28.02.21. Að mörgu leyti fer heiminum fram. Við fáum lækningu meina sem áður voru ólæknandi, komumst á milli staða, nánast óháð vegalengdum, tálmunum og torfærum, höfum aðgang að upplýsingaveitum sem á sekúndubroti opna þekkingarhirslur alls heimsins upp á gátt; við fáum heilu bækurnar lesnar í eyra okkar án þess að þurfa að hafa hið minnsta fyrir því og það sem meira er, ef við viljum nýta tíma okkar til hins ítrasta, þá er hægt að auka hraðann á lestrinum þannig að við náum að fá lesnar tvær bækur í eyrað á sama tíma og ...

SAKLAUSA SÍMTALIÐ

Greiðan hún vildi gjalda gekk því bent til varna Hann kom henni til valda hún á allt undir Bjarna. Bankasölu nú Bjarni þráir Þó bæti lítið okkar hag Engeyingarnir hér eru fáir en græðgi þeirra fag. Honum liggur lífið á ljóta hefur þanka Sviksemina allir sjá selur Íslandsbanka.   ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

LEIÐA ORKUPAKKAR ESB TIL EINKAVÆÐINGAR?

Í þessum skrifum verður könnuð eftirfarandi staðhæfing þingmanns Pírata, Björns Levís Gunnarssonar og kemur fram á heimasíðu Orkunnar okkar: Það þarf að vera aðskilnaður. Það þarf ekki að einkavæða. Ef það er tekin ákvörðun um að einkavæða þá er það ákvörðun sem er óháð öllum tilskipunum úr orkupakkanum. Ef það væri í alvörunni háð orkupakkanum þá væru engin opinber orkufyrirtæki í Evrópu. Það er enn fullt af þeim hins vegar.  Það sem þarna kemur fram er að auðvitað bæði rangt og algerlega fráleitt en það þarf hins vegar að rökstyðja hvernig og hvers vegna ...
EKKI ÉG!

EKKI ÉG!

Í dag fékk ég birta á Vísi.is grein um spilavíti sem starfa hér á landi í skjóli stjórnvalda. Ég vísa til baráttu  Samtaka áhugafólks um spilafíkn   og hvernig stjórnvöld fara undan í flæmingi og reyna að firra sig ábyrgð. Öll segja þau nánast einum rómi:   Ekki ég! Greinin er hér ...

NATO OG WASHINGTON VÍGBÚAST GEGN "GULU HÆTTUNNI"

"...  Greiningin sem Biden gerir, um baráttu milli lýðræðisafla og einræðisafla heimsins, er fölsk þó ekki væri nema í ljósi mikilvægustu bandamanna Bandaríkjanna í Miðausturlöndum. Ekki nóg með það: Bandaríkin ásamt með bandamönnum í NATO sem skreyta sig mikið með lýðræðismerkimiðum er EINI AÐILI SEM HERNAÐARÓGN STAFAR AF á alþjóðavettvangi nú um stundir. Ekki nóg með það: Af langri sögu hefur okkur lærst að því meira sem bandarísk stjórnvöld tala um að tryggja „lýðræði“ (Sýrland eða Úkraína), mannúð og mannréttindi (Írak, Júgóslavía, Líbía) eða kvenréttindi (Afganistan) í öðrum löndum þeim mun meiri dauði og eyðilegging eru í vændum. Bandarískt „lýðræði“ er banvænn útflutningur ..."

OFURVALD SAMFÉLAGSBARÓNANNA

... Ef við stöndum ekki gegn ritskoðun og árásum á borgaraleg réttindi núna, og líka þegar þau beinast gegn einhverjum sem okkur kann að mislíka við hér og nú, munum við kannski aldrei endurheimta tjáningarfrelsið. Völd einkarekinna alræðisríkja á borð við Amazon, Google og Facebook verða óhugnanleg og algjör ...

ENN UM BRASK- OG MAFÍUVÆÐINGU - UNDIRLÆGJA GAGNVART PENINGAVALDI -

Undirlægja og virðing fyrir peningavaldi eru útbreidd vandamál á Íslandi. Um er að ræða anga af sama meiði og hvort tveggja byggt á „misskilningi“ ef svo má segja. Til þess að skilja undirlægjuna þarf fyrst að greina hina misskildu virðingu fyrir peningum. Flestir tengja peninga við „efnisleg gæði“; skort eða jafnvel ofgnótt. Mikilvægt er að gera sér ljóst að öflun efnislegra gæða er bundin við þá plánetu okkar sólkerfis sem nefnist jörð. Öflunin er enn fremur bundin við jarðlífið sem slíkt. Ekki hefur verð sýnt fram á gagnsemi