Fara í efni

Greinasafn

2020

HERINN BURT!

HERINN BURT!

Hér á landi verða næstu vikurnar 500 til 600 NATÓ hermenn til að æfa sig í stríði. Maður þarf að vera snöggur til þess að finna af þessu fréttir svo stutt stoppa þær við á miðlunum. Í þinginu ræðir þetta enginn. Alla vega ef svo á annað borð er, þá svo hljóðlega að ekki heyrist. Það er eitt að segjast í orði vera á móti NATÓ eins og VG segist ennþá vera en faðma síðan þetta hernaðarbandalag og fulltrúa þess að sér hvenær sem færi gefst.  Út úr því er ég fyrir löngu farinn að lesa: Ísland í NATÓ, herinn kjurrt. En látum nú vera þótt allir - eða allflestir – þingmenn ..

HÆGRI KRATAR VINSTRA MEGIN VIÐ VG?

Smáfrétt var nýlaga laumað út um að 21 ma mundi Pentagon verja í fyrsta áfanga stríðsundirbúnings á Vellinum. IAV strax valið í 6 ma verk- hlutann, aftur mætt í hermangið. VG er afar lúpulegt í meðvirkni sinni. Mjög er fyndin vöktun umhverfis þeirra, sem látast ekki sjá, að blásið er nú í herlúður af kjarnorkutröllum. Blástur úr beljurassi er áhyggjuefnið. Svo illa er komið fyrir eldri málefna- skrá VG að vandséð er, á hvaða grunni það appírat stendur nú. Svo langt er gengið að VG blasir við sem tannlaust viðrini, reikult sem ... Nonni

BAKKABÖLIÐ VERÐUR BÆTT !

Bakkakrísan frá 2018 sem leiddi til stórstrands 2020 er mörgum áfall. En böl má bæta, enda er framkomið nýstofnað HER/ÓP hf, frumkvöðull. Ónothæft kísilver stendur ókeypis til boða á Bakka, dýrt tengt rafkerfi og mikið landrými, allt ókeypis og einkafnot af Bakkagöngum fylgja ásamt opinberum stofnstyrkjum. Afar LÍFRÆN ræktun á valmúa í 50 ha gróðurhúsum á ónýttum iðnaðarlóðum á Bakka er nýtt plan HER/ÓP HF með aðstoð séfræðinga frá Afganistan og víðar frá erlendis. HER/ÓP HF hyggst umbreyta ónýtu kísilveri í úrvinnslustöð á valmúa- afurðum. Könnun leiðir í ljós að ...

STARFSLOKAFRUMVARP VONT FYRIR VINNUSTAÐINN

Algerlega er ég sammála þér Ögmundur að með afnámi 70-ára starfslokareglu hjá ríki og sveitarfélögum er verið að gera vinnustöðum, stjórnendum þar og vinnuandanum illt með þessu frumvarpi sem þú vísar í hér á síðunni. Þetta er vanhugsað. Ég þekki þetta af eigin raun sem stjórnandi á vinnustað sem er umhugað um góðan starfsanda. Forstöðumður  
ÁTTU AÐ GETA HALDIÐ FÖSTU STARFI EINS LENGI OG ÞÚ VILT EÐA ÞANGAÐ TIL ÞÉR VERÐUR SAGT UPP?

ÁTTU AÐ GETA HALDIÐ FÖSTU STARFI EINS LENGI OG ÞÚ VILT EÐA ÞANGAÐ TIL ÞÉR VERÐUR SAGT UPP?

... skýr regla gerir valið auðveldara og lífið líka auðveldara fyrir bæði starfsmann og vinnustað, hvorugum má gleyma! Staðreyndin er sú að einhvern tímann kemur að því að starfsgetan er ekki sem skyldi vegna aldurs. Í stað þess að vinnustaðurinn segi, ertu ekki farinn að finna fyrir aldrinum Ögmundur minn, þá ert þú floginn   úr föstu starfi   þegar að þessu kemur. Er ef til vill besta fyrirkomulagið að hafa línur skýrar? -sveigjanleg starfslok hafa tíðkast víða hjá hinu opinbera með því fyrirkomulagi að fólk fer í ...lu

ALLT GERT FYRIR SA EN LISTAGREIRI Í FROSTI

Að kaupa völd er krefjandi  og dýrt í kosningum   er áróðri faglega stýrt í Cóvid fári á næsta ári er fátæktin svakaleg það er skýrt. Þar kreppunnar verður vart vælir því allt heima En þetta fólk allt vinnur svart ekki má því gleyma.   ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

HVAÐ ER ÞJÓÐAREIGN?

Meðal athugasemda sem komið hafa frá Feneyjarnefndinni, um fikt stjórnvalda við stjórnarskrána, er skilgreining á hugtakinu  þjóðareign . Þar er bæði átt við skilgreiningu á hugtakinu sjálfu sem og tengsl þess við annan eignarrétt. Þetta eru réttmætar athugasemdir enda ljóst að skýr skilgreining hugtaksins er forsenda þess að þjóðareign njóti lögverndar. Reikul skilgreining býður þeirri hættu heim að dómarar beiti orðhengilshætti við túlkun hugtaksins og þykist ekki skilja það.  Það er hins vegar reginvilla sumra lögfræðinga að hugtakið   þjóðareign   sé merkingarlaust. Árin fyrir hrunið var áberandi að fjölmiðlar og fleiri  ...
HVORT MÁ BJÓÐA: MENGUN AFTAN ÚR NATÓ-VÉL EÐA BELJURASSI?

HVORT MÁ BJÓÐA: MENGUN AFTAN ÚR NATÓ-VÉL EÐA BELJURASSI?

... Svo kom þriðja reiðarslagið. Hér eru staddar tugir orustuþotna frá NATÓ að æfa sig fyrir strið í boði ríkisstjórnarinnar. Eyfirðingar urðu í dag vitni að logandi eld-brennurum aftur úr þessum vélum. Að sögn er þetta gríðarlega mengandi. Þannig að enn þarf að planta. Svo má náttulega leika sér með tölur og ...
ÞAR SEM ÓLÍKLEGT ER AÐ Á ALÞINGI VILJI NOKKUR …

ÞAR SEM ÓLÍKLEGT ER AÐ Á ALÞINGI VILJI NOKKUR …

... Og til að botna fyrirsögnina,   ÞAR SEM ÓLÍKLEGT ER AÐ Á ALÞINGI VILJI NOKKUR  fá útskýrt sitt hvað sem hljómar mótsagnakennt í meira lagi úr ranni ríkisstjórnarinnar, þá leyfi ég mér að setja fram eftirfarandi vangaveltur: Samgönguráðherra upplýsir í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi að til standi að setja, að því er mér skildist, um 1200 milljarða(!) í samgöngumál á næstu 15 árum og gera þannig átak sem dugi til þess að koma samgöngumálum í gott lag.  Hann er spurður hvers vegna þetta hafi ekki verið gert fyrr og hann svarar að ...   

MÓÐIR REIÐIST RÍKISSTJÓRN

Í morgun hlustaði ég á forsætisráðherrann tala í útvarpi um afstöðu ríkisstjórnarinnar til sóttvarnaraðgerða. Henni fannst allt vera rétt gert. Allt bara tilmæli, ekki bönn. En það eru ekki einu sinni tilmæli til þeirra sem reka viðbjóðslega spilakassa um að loka þeim. Aðstandendur spilafíkla hafa þó grátbeðið um að “góðgerðafélögin” verði skikkuð til að loka. Nei, aldeilis ekki! Ríkisstjórnin hefur meira að segja fyrir því að breyta reglum frá í vor til að undanskilja spilakassaútgerðina timælum sínum. Ég á dóttur sem þessir kassar hafa eyðilagt. Þess vegna vil ég tala tæpitungulaust við ykkur sem stjórna hér. Í mínum augum eruð þið vesalingar. Móðir spilafíkils