Fara í efni

Greinasafn

September 2015

Björk Vilhelmsdottir

GÓÐ VERKLOK BJARKAR

Ekki var ég sáttur við yfirlýsingar Bjarkar Vilhelmsdóttur, fráfarandi borgarfulltrúa, um nauðsynlegt  „spark í rassinn" á mörgum þeim sem leita til félagsþjónustunnar.. En þeim mun ánægðari var ég með svohljóðandi tillögu hennar í borgarstjórn Reykjavíkur um Palestínu: „Borgarstjórn samþykkir að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við Innkaupadeild Reykjavíkurborgar að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskar vörur meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir.". Tillagan var samþykkt og er hún mikilvæg skilaboð til Ísraelsstjórnar um að láta af ofbeldi í Palestínu og hún er líka mikilvæg stuðningsyfirlýsing við málstað Palestínumanna sem þurfa á því að halda að vonarneistinn í hjörtum þeirra slokkni ekki.. Orð skipta máli en verkin þó enn meira máli.
Kastljós 1

KASTLJÓS Á LOF SKILIÐ!

Kastljós Sjónvarpsins fer vel af stað og eiga aðstandendur þessa mikilvæga fréttaskýringarþáttar Ríkisútvarpsins  hrós og lof skilið fyrir umfjöllun sína um málefni flóttamanna.. Þátturinn á mánudag var upplýsandi, lifandi og áhrifaríkur.

EIGI SKAÐVALDINN Á HEIÐINA!

Hersetu viljum helst ekki sjá. né herskáu NATÓ leiðina.                                 . Skelfingu vekur ef skildum fá. skaðvaldinn aftur á heiðina.. . Pétur Hraunfjörð
USA - árásarflugvél

Á AÐ FÁ SJÁLFAN SKAÐVALDINN AFTUR Á MIÐNESHEIÐINA?

Á vefnum  DEMOCRACY NOW (LÝÐRÆÐI NÚNA), sem er bandarískur fjölmiðill á netinu og öldum ljósvakans er viðtal við Annette Groth, þingkonu Die Linke, Vinstra flokksins í Þýskalandi,  sem hingað kom í sumar og hélt erindi um aðkomu sína að hafnbanninu á Gaza fyrir fimm árum (sjá slóðir m.a.  viðtal við Annette í Fréttablaðinu: http://ogmundur.is/annad/nr/7614/ oghttp://ogmundur.is/annad/nr/7611/.). . Annette Groth er atkvæðamikill þingmaður í heimalandi sínu og öflugur málsvari mannréttinda á þingi Evrópuráðsins.
Guðmundur landl 2

GUÐMUNDAR BJÖRNSSONAR MINNNST Á ALÞINGI

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis minntist þess í dag að hundrað ár eru liðin frá því að sett voru ný þingskaparlög á Alþingi en verkstjórn um gerð laganna var á hendi Guðmundar Björnssonar, alþingismanns sem jafnframt var landlæknir.. Guðmundur Björnsson var merkur maður og forgöngumaður um ýmis framfaramál  á sinni tíð, allt frá vatnsveitumálum í Reykjavík, stofnun Slysavarnafélags Íslands og nýjunga á sviði heilbrigðismála.

SJÁ KÖNNUN Á VEF DV

Athyglisvert er að fylgjast með könnun á þjóðnýtingu á náttúruperlum sem DV setti af stað eftir að blaðið kynnti grein þína um þetta efni: http://www.dv.is/frettir/2015/9/14/vill-thjodnyta-natturuperlur/. Ég hvet fólk til að taka þátt í þessari könnun.. Jóhannes Gr.

ENGINN Á AÐ GETA SELT AÐGANG AÐ NÁTTÚRUNNI

Íhaldið á ekki í vandræðum ef þarf að þjóðnýta eða skerða rétt landeigenda undir raflínur í þágu stóriðju.
Námaskarð 1

ÞARF AÐ ÞJÓÐNÝTA NÁTTÚRUPERLUR?

Áfram er rukkað löglaust við Kerið í Grímsnesi og norðanheiða segir „verkefnisstjóri" sem óvart er jafnframt landeigandi að svo gæti farið að loka verði við Leirhnjúk fái landeigendur ekki að rukka: http://ruv.is/frett/gaeti-thurft-ad-loka-an-gjaldtoku . . Ferðamálaráðherrann lætur þetta allt viðgangast og gengur reyndar lengra og blessar athæfið og þar með ríkisstjórnin öll.

SIGLA BRÁTT

Björk á förum ei finnur sátt,. fer að vinna í sínu.                              . Sveinn og frúin sigla brátt. suður til Palestínu. . . Pétur Hraunfjörð . . .  

SDG OG ÓSKHYGGJAN

Sigmundur sér grænar grundir. og gæfu við hvert spor. . Með óskhyggjunni styttir stundir,. stjórninni fram á vor.. Pétur Hraunfjörð