Fara í efni

Frá lesendum

BLESSUÐ SÉ MINNING SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

Sigmundur Davíð sagði þetta að sinn flokkur biði í dans Spillingu mundi líka af létta og líflegri yrðu áhrif hans. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

OFFRAMBOÐ Á VALDI, SKORTUR Á GÓÐVILJA

Áslaug í þyrlu þeyttist um landið misnotaði þá almannafé Enn sýnir nú flótta-fólkinu valdið fádæma hroka þarna sé. Tíminn líður tæplega hratt í tímabundinni veiru Valdið gæti því marga glatt með góðvilja og fleiru. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

LAXÁRLÝÐRÆÐI, UPPRUNAFÖLSUN OG FLEIRA

Alþingisspillingin umfangsmest, allmargir stíga ekki í vitið. Í Laxánni virkaði lýðræðið best, lausnin var dýnamitið. Með almannasjóðina ætla að valsa, auðlindum stolið og rænt. Erlendis ræturnar uppruna falsa, með íslenskri vottun um grænt. ... Kári

TEKIÐ UNDIR MEÐ GRÍMI UM BAKKA-RANGHERMI OG ÞÖGGUN

Þú pælir sem aðrir Ögmundur í pestaróféti, m.a hvernig það virkar á stjórnmál. Eitt gróft dæmi um misnotkun er verksmiðjan á Bakka sem okkur er sagt án athugasemda fjjölmiðlafólks að hafi lent í ógöngum vegna Covid. Þetta eru helber ósannindi. Þess vegna fagna ég skrifum Gríms hér á síðunni um staðreyndir þessa máls. Svo vill til að ég þekki þetta nokkuð og tek ég heilshugar undir með Grími: Sleitulausar ófarir i rekstri kísilvers á Bakka hófust um mitt ár 2018, frá byrjun. Ekki batnaði rekstur 2019, tapið þá 7.3 milljarðar. Ömurlegur var gangurinn, 2020 byrjaði mjög illa. Líklega var tap á tveggja ára rekstri orðinn 14 ma þegar glóruleysið leiddi til stöðvunar á rekstri við lok júlí sl. Engin búbót er sýnd í kortum. Krísan algjör. Vegna þessa tekur yfirklór við en mest þöggun um málavexti. Grófasta ranghermið til yfirklórs er ... Jóhannes Gr. Jónsson

FER MIKINN

Bítur oft í annars bök eða ber út þvaður Þorsteinn hefur á því tök enda auðmaður.   Við lygina ´ann laginn er ef leitar til varna Maðurinn þar mikið fer ég meina Bjarna. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

PÓLITÍSK LINDÝR

Mosi spyr hvað eigi að kalla stjórnmálafólk sem brýtur reglur sem það setur öðrum, lætur hagsmunaaðila bjóða sér í dekurferðir og síðan þyrlu Landhelgisgæslunnar snatta með sig fram og til baka á ráðherrafundi. Þau sem ekki eru í þyrlunum eða í dekurferðunum kóa með í þögn. Mosi klykkir út með því að spyrja hvort vanti beinin í þetta fólk. Þar með hefur hann svarað spurningu sinni. Að sjálfsögðu eru þetta pólitísk lindýr.  Sunna Sara

ALLIR TILBÚINIR AÐ SEGJA ÓSATT?

Þyrla Landhelgisgæslunnar flytur dómsmálaráðherra, sem er í hestaferð á Suðurlandi, til Reykjavíkur og aftur tilbaka. Landhelgisgæslan segir þetta hafi verið í leiðinni og þá væntanlega bæði fram og til baka. Þetta eru augljós ósannindi og er óneitanlega óþægilegt þegar kerfið er tilbúið að segja ósatt beint upp í opið geðið á okkur. Stutt er síðan ferðamálaráðherrann fór í dekurferð á vegum hótelkeðju, sem er siðlaust, og braut auk þess reglur sem hún var nýbúin að setja öðrum af því að það var svo gaman að hitta vinkonurnar og dómsmálaráðherrann segir okkur hve verðmætt það sé fyrir sig að komast á hestbak og í sól. Ríkisstjórnin kóar síðan með. Hvað á að kalla þetta? Vantar beinin í ... Mosi

ORT Á DJAMMINU

EKKI reyndist feigðarflan fínleg kynning Tótu væna budda Vincent Tan vælir ekki úr gjótu. ... Grímur.

UM PRINSIPP OG PRINSIPPLEYSI

Sammála er ég Jóel A. hér á síðunni hjá þér Ögmundur minn um það hvernig fréttamiðlar okkar virðist líta á það sem hlutverk sitt að sefa þjóðina og svæfa og drepa öllu á dreif sem máli skiptir. Í samanburði við stóru pólitísku málin þá sé kossaflangs ferðamálaráðherra með vinkvennum smávægilegt þótt brjóti gegn því sem predikað er. En eftir því sem ég hugsa málið þá finnst mér þetta þó ekki vera eins smátt mál og í fyrstu. Það varðar nefnilega prinsipp eða öllu heldur prinsippleysi. Þá er ég ekki bara að hugsa um fjarlægðartakmörk sem stjórnvöld ráðleggja heldur að vinkonurnar hafi verið í boði hótelkeðju! Semsagt ferðmálaráðherra fer ... Mosi  

MANNA BEST AF LANDANUM

Mútur þekkir Þorstinn Már manna best af landanum Er talinn vera kallinn klár þó kolfastur í vandanum. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.