Fara í efni

Frá lesendum

YFIRVOFANDI BANKARÁN

Ef að drýpur eitthvað smér, öllu vill hún sanka. Íslenska mafían ætlar sér, eignarhald á banka. Kári

HÆTTA BÚIN LÝÐRÆÐI

Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ... Nonni

FÁLKAORÐUNA VILJA FÁ

Aldnir upphefð alla þrá ágætið sjálfir meta Og fálkaorðuna vilja fá allir þeir sem geta. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

,,ÁRAMÓTINN 20-21‘‘

Landsmenn fagna  nú lokast sárið því loksins kláraðist ótuktar árið sprautu víst fáum bættan hag sjáum og fljótlega líður frá Cóvíd fárið . Ég óska öllum árið gott eftir óþverra pestina   Kófinu nú komum á brott og kjósum svo í restina. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.  

ENDURTEKIN BANKARÁN OG FEMINISTABYGGÐ

Bönkum ræna bannsettu, bófum auðinn fólu. Ráðherra festa á rakettu, reikna braut um sólu. ... Kári

AÐ GEFNU TILEFNI

Ráðherra forsætis rökin virði, reglur gilda um frúna. Faðmaði sjálf á Seyðisfirði, en saklaus þykist núna. ... Kári

„HÁTTVIRTUR” RÁÐHERRA?

Lögin brjóta, lítil fórn, líka vín og sukkið. Ráðherra í ríkisstjórn, reyndist hafa drukkið. Kári 

ÚRSÚLA BOTNAR

Komdu blessuð, Katrín hér, kosti þarna góða sé. (Ursula): Bóluefni býð ég þér, og bæt´ykkur í ESB. Kári

ALLIR FÁ SITT

Hátíðin nú gengur í garð grímu jól og pestin Kaupmenn allir fá sinn arð en tekjufallsbætur restin. Tíminn líður traustið fer töluverð fátækt þvingar illa líður mörgum og mér menn telja í kosningar. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

VEL MÆLT FYRIR HÖND ASÍ OG SITTHVAÐ FLEIRA

Drífu vil þakka dugnaðinn dengi því fram í hrósi Hjartahlýu frá henni finn fór á kostum í kastljósi. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.