Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi alþingiskona, skrifar grein í Fréttablaðið í dag og stingur upp á málamiðlunartillögu um framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Sæll Ögmundur,. Heilbrigðiskerfið þykir dýrt hér á landi á alla mælikvarða sem óseðjandi hýt en hvar skyldi draga mörkin? Kemur að því að eldri borgarar yfir 70 ára hafi lifað sældardaga og þurfi síður í dýrar eiturmeðferðir vegna krabbameins sem lengir lifið mögulega um fá ár eða fá líknandi meðferð? Á að skikka þá sem eru of þungir til að takast á við þann vanda á eigin vegum fyrir aðgerð sem dugar ein og sér skammt verði matarfíkninni ekki slátrað? Sjálfur er ég ný skriðinn út úr 5 vikna sjúkrahússdvöl eftir bakspengingu vegna hryggbrots en vegna sparnaðar var því sleppt að taka mynd illu heilli og hökkti þannig í marga mánuði uns spenging var óumflýjanleg með skertum lífsgæðum.
Eftir því sem ég fæ skilið átti Jón Baldvin Hannibalsson að koma inn sem gestafyrirlesari í HÍ í um það bil einn mánuð! Ekki svo að skilja að einhverju hefði breytt þótt það hefði verið lengur.
Þú vilt hleypa inn í Háskóla Íslands manni sem braut allar siðferðisreglur og þú gagnrýnir skólann og þar með heldur þú uppi vörnum fyrir manninn sem þetta snýst allt um, Jón Baldvin Hannibalsson. Sjálfur braust þú jafnréttislög Ögmundur þegar þú réðst karl í sýslumannsembætti en áttir lögum samkvæmt að ráða konu.
Í vikublaðinu Reykjavík er úttekt á afstöðu borgarfulltrúa í Reykjavík til flugvallarins í Vatnsmýrinni undir fyrirsögninni Meirihlutinn vill að flugvöllurinn fari.
"Ekkert aðgerðarleysi", "engar nefndir", "brettum upp ermar", "látum verkin tala" og "það strax" ."Ef okkur tekst ekki að semja við krónueigendur í sumar verður greitt úr neyðarsjóði í síðasta lagi í haust.
Í sambandi við vörn Björns Vals fyrir Samherja er nauðsynlegt, að fólk hafi í huga, að Björn Valur er fyrst og fremst búrtík hins alræmda stjórnmálamans, Steingríms J, Sigfússonar, sem hefur með verkum sínum reynst einn af hörðustu haukunum í horni Líú-einokunarmamafíunnar.
Í opnu lýðræðisþjóðfélagi þurfa menn iðulega að gjalda synda sinna í opinberri umræðu. Ekki eru áfellisdómar almenningsálitsins alltaf réttlátir dómar þótt oft séu þeir það.
Fyrrverandi ríkisstjórn setti á svokallaðan auðlegðarskatt. Einhleypingar sem eiga hreina eign umfram 75 milljónir króna borga 1,5% af umframeigninni og 2% af hreinni eign umfram 150 milljónir króna.