Fara í efni

Greinasafn

Febrúar 2012

DV -

LÍFEYRISKERFIÐ ÞARF AÐ STOKKA UPP

Birtist í DV 20.02.12.. Sl. fimmtudag fór fram umræða á Alþingi um nýútkomna skýrslu um lífeyrissjóðina. Almennt þótti mér umræðan góð.

ÍSLAND ÚR LOFTI

Setjum svo að við gætum flogið yfir Ísland og sett upp efnahagsgleraugu, svona einsog næturkíki, þá sæi maður eftirfarandi:. 2000 milljarða í eigu almennings inni í girðingu sem heitir lífeyrissjóður; maður sæi ríkissjóð í eigu almennings sem skuldar 2000 milljarða; maður sæi 10-20 þúsund manns í atvinnuleysi; maður sæi heilsugæslu í niðurníðslu; maður sæi vegakerfi í ólestri.. Fyrsta hugsunin væri auðvitað: Hvað veldur því að almenningur greiðir ekki upp skuldir sínar (helmingurinn af skuldum almennings er við sjálfan sig) með eignum sínum?. Hvað veldur því að Alþingi ákveður ekki að taka yfir eignir og skuldbindingar lífeyrissjóðanna og hreinsa ríkissjóð af skuldum? Hvað veldur því að ríkið fer ekki út í stórfelldar vegaframkvæmdir og uppbyggingu í helsugæslu, eyðir með því atvinnuleysi, eyðir út kostnaði við atvinnuleysi og fær skatttekjur í staðinn?. Hreinn K
MBL  - Logo

GOTCHA!

Birtist í Morgunblaðinu 14.02.12. Fyrirsögnina sæki ég úr bófahasarleikjum frá mínum uppvaxtarárum. Þetta var tungutak kúrekamyndanna þegar andstæðingurinn hafði verið gómaður.
Fréttabladid haus

LYGABRIGSL FRÉTTASTOFU

Birtist í Fréttablaðinu 14.02.12. Árið 1996 kynnti þáverandi ríkisstjórn lagafrumvarp um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.

STUTT AÐ LABBA?

Heill og sæll Ögmundur minn. Trúðu mér, að aldrei hef ég fallerað fyrir framsóknarmaddömunni, en maður er svo dannaður að maður hlustar einstaka sinnum eftir orðræðu maddömunnar.
TV RUV

MISNOTUÐ FRÉTTASTOFA

Fjölmiðlarnir gegna mikilvægu lýðræðislegu hlutverki. Þannig eru dagblöð vettvangur fyrir miðlun upplýsinga og skoðanaskipti.
SJONVARPID GIF

FÁDÆMA ÓHEIÐARLEIKI FRÉTTASTOFU SJÓNVARPS

Hálf er það óþægileg tilfinning að treysta ekki fréttamiðli; að ekki sé minnst á sjálfan ríkisfjölmiðlinn, RÚV, sem við fjármögnum með lögbundnum gjöldum okkar.

GOTT AÐ HAFA ÞIG Í SKOTLÍNUNNI?

Ég hef fylgst með viðureign fréttastofu RÚV við þig Ögmundur og furða ég mig á fréttamennskunni um lífeyrismálin.

ÞJÓÐIN BLÓÐMJÓLKUÐ!

Ætlar Innanríkisráðherrann að standa við loforð um mannréttindi í hvívetna? Ásamt því að virða og heiðra álit Mannréttindanefndar SÞ? Og þar með að bæta þeim sjómönnum þau mannréttindabrot sem framin hafa verið? Ekki trúi ég að Innanríkisráðherrann óttist gengið í LJÚ? Að gefnu tilefni finnst mér rétt að árétta við Innanríkisráðherrann stórfelld lögbrot sem framin eru enn í dag, sem og undanfarna áratugi, allt frá setningu kvótalaganna 1984.

EKKI LÁTA KÚGAST

Láttu svikula fjölmiðla aldrei kúga þig Ögmundur. M.b.kv.. Anna Sigríður Guðmundsdóttir.