Fara í efni

Frá lesendum

MEÐVIRKNI OG SVIK

Meðvirknin er mikið fár, merki ljótra bletta. Opnast gluggi agnarsmár, í eðli svikapretta. Kári

ÓMÆLDUR ER SKAÐINN

Björgunarsveitin var boðuð á staðinn Björgólfur mætti hugmyndum hlaðinn Samherja huggar ráðin þar bruggar ómældur er samt þjóðfélags skaðinn. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

ÞEGAR MAFÍU-GRÁTT VERÐUR MAFÍU-SVART

Í mafíu hlæja þeir margir dátt, magnað þvættið keyra. Það sem var einungis öskugrátt, alltaf dökknar meira. ... Kári

SAMHERJI Á AFRÍKUVEIÐUM

Þarna eru sorgleg svikafól eiga sér fáa líka Ránshendi fóru um fátæk ból og gerðu sig ríka. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

SAMHENGI HLUTANNA OG LJÓSIÐ SEM ÞARF AÐ KVEIKJA

Nú er ljóst, því miður, að í Namibíu komu auðmenn og soguðu til sín auðlindir fólksins - frá fátækri þjóð. Þar í landi eru varnir veikar. Til þess að þetta væri gerlegt þurfti til nokkra spillta stjórnmálamenn og peninga. Ljósið var óvænt kveikt og stóðu menn allt í einu baðaðir í kastljósinu á miðju búðargólfinu með fenginn í höndunum. Á sama tíma á Íslandi ... R.R.

SÖKINNI VARPAÐ Á SENDIBOÐA

Ef þeir í sjónvarpi sýna hroðann, í sannleikann mátt ekki detta. Varpaðu sökinni á sendiboðann, segðu hann misskilja þetta. ... Kári

DAVÍÐ VIÐ ANDAGLASIÐ

Við andaglasið Davíð dvelur og dulræna visku fær Því vitleysinga nú víða telur ei virðist sér líta nær. Höf. Pétur Hraunfjörð.

AÐ KAUPA “ÞVOTTAVÉL

Ef þvætta viltu þannig fé, þýfi miklu sanka. Eftirlitinu komdu á kné, kauptu ríkisbanka. ... Kári

“FRELSIД OG ÍSLENSKA MAFÍAN

Í mafíu hlæja þeir margir dátt, magnað þvættið keyra. Það sem var einungis öskugrátt, alltaf dökknar meira. Kári

ÞARF AÐ GETA KLÓRAÐ BAKIÐ

Flokkur núna finnur mann, flinkan til að klóra. Úr sínum röðum setur þann, í sæti útvarpsstjóra. Kári