Fara í efni

Frá lesendum

MÁ BJÓÐA ÞÉR UPP Á SKYR?

Skyrið góða bjóða skalt og skrauthænu eggin Líka mjöðinn íslengst malt máttu troða í segginn. Höf. Pétur Hraunfjörð.

Þingmenn gegn þjóðinni - Orkupakki 3

Lokast núna lásinn hrings, lygi stunda kappar. Enda bráðum utan þings, aumir svikahrappar. Að auðlindum þjóðar er opnun greið, illa er á málum haldið. Fjárglæframennirnir fundu sér leið, fara með dagskárvaldið. ... Kári

TRUMP VILL GRÆNLAND

Donald Trump og Drottningin ei draga hugi saman. Fyrir Grænlandi liggur lotningin en Mette blæs á dramann. Uppí nefið ´ún varla nær undrar engan vandi Trump er henni ekki kær og engum á Grænlandi. Höf. Pétur Hraunfjörð.

ÞÖRF Á NÝJU AFLI!

Er ekki gott, fórnfúst og þjóðhollt fólk einhverstaðar þarna úti, sem er tilbúið að vinna að því að koma á fót nýju afli til mótvægis við alla stjórnmálaflokkana sem fyrir eru og sem eru ákveðnir í að fórna Íslandi þrátt fyrir vilja meirihluta þjóðarinnar?! Látum þetta ekki gerast. Það liggur mjög mikið við! Við bíðum eftir að heyra frá slíku afli. Halldóra

GRÆNLAND TIL SÖLU? HVAÐ Á TRUMP AÐ HALDA?

Það er von að Íslendingar flissi yfir þessu, jafn vitlaust og þetta er nú. Trumparnir eru hinsvegar að kaupa Ísland. Það er ekki nema von að kallinn haldi að Grænland sé ti sölu líka ...  Kv, Kjartan

Í HERRA GUÐLAUGS NAFNI

Brátt kemur herinn á heiðina í herra Guðlaugs nafni Vinstri/Græn völdu þá leiðina svo vestræn áhrif dafni. Höf. Pétur Hraunfjörð

UM DAGSKRÁRVALD, GAMMA OG GULLEGG

Að auðlindum þjóðar er opnun greið, illa er á málum haldið. Fjárglæframennirnir fundu sér leið, fara með dagskárvaldið. ... Kári

HVENÆR HÆTTIR BJARNI?

Þetta flýtur bæði fast og laust, fréttir af því nokkuð tíðar. Ef að Bjarni hættir ekki í haust, hætta mun þá bara síðar. Kári

AUÐVELT AÐ KAUPA FRIÐHELGI

Mér ofbýður hve landinn leggst lágt við að bugta sig fyrir hinum ekki-algóða Ratcliffe „stórbónda“ og „höfðingja“. Það er svo grátlega auðvelt fyrir slíkt fólk að kaupa sér friðhelgi og ofurtrú almúgans á Íslandi; nokkrar krónur til HÍ og orð í eyra þeirra sem það vefst fyrir að neita „velboðnu“. Halldóra

ÁKÚRUR HLUTU

Þetta er lélegt katta klór yfir klaustursrónagengi þeir viðhöfðu þar orðin stór er þjóðin minnist lengi. Siðareglur að sjálfsögðu brutu en sídrykkunnar allir þar nutu Beggi og Bragi eru ekki í lagi af umælum sínum ákúru hlutu. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.