Fara í efni

Frá lesendum

Ummæli um forsetaembættið ekki rökstudd?

Sæll Ögmundur! (Þetta er ekki fyrirspurn frá mér heldur álitsgjöf). Ég er nú svo aldeilis hissa! Ég sperrti eyrun þegar þú svaraðir spurningu fréttamanns Sjónvarpsins um það álit þitt að kónga- og auðmannadekur hafi keyrt úr hófi fram á Bessastöðum og hélt að þú myndir útskýra hvað þú ættir við.

Með skottið milli fóta

Með döngun hunds og dýrsins kjark fær Davíð lífs að njóta, hann skríður einsog skeppna í mark með skottið milli fóta.

Hann Ólafur er líka okkar maður!

Sæll Ögmundur. Ég þakka þér fyrir stórgóða grein um forsetaembættið en það er þó að mínum dómi stór ljóður á annars ágætu ráði þínu þegar þú ferð að tala um kónga- og auðmannadekrið á Bessastöðum.

Tyggigúmmíkenningin endurmetin

Heill og sæll Ögmundur.Ég neita því ekki að heldur þótti  mér tyggigúmmíkenningin, sem þú varst einhvern tímann að gantast með hér á síðunni, vera á jaðri aulafyndninnar og reyndar alveg út í hött.

Þingmenn með 42,34% fylgi samþykktu fjölmilðalögin!

Ögmundur.Í tilefni staðhæfingar Halldórs Ásgrímssonar um að 88% þjóðarinnar standi að baki fjölmiðlalögunum eins og fram kemur í umfjöllun þinni hér á síðunni í dag er fróðlegt að íhuga eftirfarandi: Hér koma tölur úr Alþingiskosningum 2003.

Bláhenda

Með klækjum hafa karlar reyntað krækja í þann stóra,þeir halda að 'ann hafni seintí höndunum á Dóra.  Kristján Hreinsson, skáld

Halldór á hótelherbergi?

För þeirra Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, og Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra á NATÓ fund í Istanbúl hefur ekki farið framhjá neinum.

Á að halda fundinn í kyrrþey?

Það vakti athygli mína í fréttum af undirbúningi þinghaldsins í næstu viku að ekki standi til að sjónvarpa frá Alþingi eins og venja er.

Ein sem skýrir sig sjálf

Einsog stagbætt stjórnarskrásem Styrmir þarf að dæmamarga spretti Mogginn ámisjafnlega slæma. Kristján Hreinsson, skáld

Virðing í anda Morgunblaðsins

Sæll Ögmundur.Ég er ein af þeim sem jafnan hef varið Morgunblaðið í vinahópi mínum þegar það hefur verið gagnrýnt.