Á hvorum útifundinum varst þú Ögmundur, á Ingólfstorgi eða Austurvelli? . Jóel A.. . Því miður var ég ekki staddur í Reykjavík og því fjarri öllum útifundum og líka 1.
Það er rétt hjá þér að það er gott framtak að fá sögu SFR á þrykk en þarf ekki að skrifa sögu BSRB líka? Þar er merkileg saga að baki og ekkert síður til þess fallin að kenna við „baráttu og sigra" en saga SFR.
Ólafur óskar eftir fundi. um Búnaðarbanka slag. því allt í einu eitthvað mundi. er minnið komið í lag? . . Nú framtíð okkar fara með. frændurnir Bjarni og Bensi. Og sárafátækt er fyrir séð. en sjálfir á Tortóla lensi.. . þar lífið virðist leikur einn. hjá launaháum aðli. þó ávalt hangi einn og einn. í erfiðleika kaðli.. Pétur Hraunfjörð . . . . Og sárafátækt er fyrir séð. . (en sjálfir á Tortóla lensi.)
Störf eru nú auglýst hjá Samskipum. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri. Vera með ökuréttindi. Og hafa hreina sakaskrá!!:. . Þeir auglýstu þarna störf. eftir fólki með gott orð. Hjá Samskip er söguleg þörf. fyrir sakarvottorð.. Pétur Hraunfjörð. . .
Ég las grein þína um Iðnó og að borgin væri að fá nýjum rekstraraðilum húsið í hendur. Ég er leiklistarkona í efri aldursflokki og hef sitgið inn fyrir dyr í Iðnó fyrr og þá á sviðið, og síðar sem áhugamanneskja.
Nú ræður kjaftur og kylfa. og kúvendum öllu þar. Reynum Ragnar í stað Gylfa. og rekum gamalt skar.. Okkur leiðist þar lyga rausið. sem launþegaforingjar tjá. Velgjörðar væntingum er ausið. en vanefndir allir sjá.. Pétur Hraunfjörð