Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Janúar 2012

STYRKLEIKI - EKKI VEIKLEIKI

Sæll Ögmundur.. Færi þér þakkir fyrir grein þína í Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Vitaskuld geta menn haft mismunandi skoðanir á sekt eða sakleysi Geirs H.

FRIÐÞÆGINGAR-KAPALL

Heill og sæll. Hafðu þakkir fyrir einarða og skynsamlega afstöðu til dómsmálsins á hendur Geir Haarde. Sá málatilbúnaður er skírpaleikur einn og ekkert nema friðþægingarkapall lagður til þess að fría menn frá því að gera róttækar breytingar á stjórnaháttum og þjóðskipulaginu í heild sinni.

ANDLEGT HEILBRIGÐI DREGIÐ Í EFA

Til hvers ertu í þessu starfi viltu ekki hleypa heilbrigðu fólki að?! Ég verð nefnilega að játa að núna er ég farinn að efast um andlegt heilbrigði þitt ef satt skal segja!! Til hvers haldið þið og núna þú að þið hafið verið kosinn á þing?! Til að hreinsa til þú ert nú ljóti bullustampurinn manngrýla!! . Þetta eina tiltekna mál er hægt að líta á sem einn hluta endurreisnar og þessi baggi frá og snúa sér að næsta sem ætti að vera að koma á almennilegum lögum kríngum ykkur og þar ert þú núna í aðalhlutverki núna!! Þú veist ekki hvað þú komst mér í mikið uppnám núna lúsablésinn þinn ég kaus þig meðal annarra á þing og núna ætlar þú að bregðast fólkinu sem kaus þig í góðri trú!! Sem þú ætlar að rústa því sem þó er reynt að gera af veikum mætti!! Þetta er táknrænt að senda manninn sem var fjármálaráðherra og forsætisráðherra í þessum ónýtu ríkisstjórnum hver ætti frekar að vera fyrir dómi?? Auðvitað ætti allur þessi landráðalýður að vera fyrir dómi en það er ekki í boði núna þar ættir þú að vinna að breytingum á þessu kerfi til þess ertu þarna ég vil sjá þig drúlla þér úr pólitík ef þú heldur þessu til streytu!!? Og hleypir þá almennilegu fólki að við höfum ekkert og minna en það að gera við svona rugludalla eins og þig!! . Burtu með þig lúsablésinn þinn!! Og núna krefst ég þess að þessi eini aumingjans úra ræningi verði náðaður! Hann var sá eini sem náðist þannig að það væri rétt af þér að náða hann bara!!? Þvílíkur bullustampur sem þú ert!! . Kveðja.

KÝS ÞIG ALDREI AFTUR!

Kæri Ögmundur.. Ég sem kaus þig í síðustu kosningum, vil hér með tilkynna þér að það mun ég ekki gera aftur.

RÉTT EFTIR HAFT?

Er það rétt skilið Ögmundur og eftir þér haft sem hér kemur á eftir? "Þegar mál níumenninga voru fyrir dómstólum komu víða fram áskoranir til þáverandi dómsmálaráðherra að hann skyldi láta málið niður falla.

EGILS SALT - EGILS MALT

Akso Nobel saltframleiðandinn sem framleiddi iðnaðarsaltið, sem Ölgerðin, Egill Skallagrímsson, dreifði og seldi í íslensk matvæli, sendi frá sé yfirlýsingu í gær.

EKKI SETJA OKKUR Í SAMA FLOKK OG GLÆPAMENN!

Ég hvet þig Ögmundur til þess að kynna þér vel sem flestar hliðar og hagsmuni skotvopnaeiganda og vandir þig áður en þú setur saman endanleg drög að breytingum á þessum lögum.

SKYNSEMIN RÁÐI

Ekki nein skömm að viðurkenna mistök sín Ögmundur. Með sömu rökum og þú beitir gegn skotvopnaeigendum, eða að glæpamenn gætu komist yfir vopnin og misnotað þau gegn, lögreglu og borgurum, er með sama hætti hægt að segja að kraftmiklir bílar og mótorhjól séu líka misnotuð af glæpagengjum.

AKIÐ VARLEGA

Sæll Ögmundur.. Hef stundum velt því fyrir mér hvað er gott og hvað vont hjá háskólaprófessorum. Róbert Spanó, forseti lagadeildar og prófessor, kemst að þeirri niðurstöðu að málareksturinn gegn Baldri Guðlaugssyni stangist á við ákvæði mannréttindasáttmála.

BANDARÍSK VOPNALÖG TIL FYRIRMYNDAR?

Ef þú styddir frelsi og lýðræði eins og þú þykist gera værir þú ekki á móti vopnaeign eins og versti kommunisti.