Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Mars 2020

VEXTIR, MIÐALDAKIRKJAN OG JÓLIN HJÁ INNHEIMTUFYRIRTÆKJUM

Ég er sammála Jóhannesi Gr. Jónssyni í bréfi til síðunnar að ekki síður mikilvægt en að ná verðtryggingunni burt er að banna vexti – þar er ekki gengið lengra en kirkjan gerði á miðöldum! Svo þarf að banna allan innheimtukostnað. Ég þykist vita að innheimtuskrifstofurnar hugi nú gott til glóðarinnar eins og jafnan í kreppu. Þá eru jólin ... Sunna Sara

VEXTI NIÐUR Í NÚLL OG BANNA INNHEIMTUKOSTNAÐ

Í rauninni er þessi krafa þín um 0% vexti, Ögmundur, mikilvægari en afnám verðtryggingarinnar, eins mikilvæg og hún þó er. Ef vextir yrðu 0% þá kann einhverjum að þykja óþarfi að lögbinda bann við dráttarvöxtum. Fjámálastofnunum væri þó trúandi til þess að viðhalda þeim væru þeir ekki bannaðir. Þess vegna þyrfti bann við dráttarvöxtum og innheimtukostnaði að vera líka í frumvarpi um 0% vexti.  Þetta þarf ríkisstjórnin að leggja til strax og Alþingi að samþykkja strax! Ef ríkisstjórnin gerir þetta ekki þarf Alþingi að taka frumkvæðið.  Jóhannes Gr. Jónsson

,,HAUKUR SÓSÍALISTI‘‘

Nú Haukur virðist í hanaati hér sýndi Ögmundi klærnar Í sósíalísku svindli og plati sér Ömmi fram fyrir tærnar. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

ERU MENN NOKKUÐ AÐ MISSA SIG?

...  Ekki fylgdi sögunni hvort hinn grunaði hefði verið borinn út á börum, eða hvort hann gekk úr vélinni með geimverunum, eftir að hafa setið í þrjá klukkutíma með öllum hinum farþegunum.  Eru menn nokkuð að missa sig? Mátti ekki taka á móti hinum grunaða með grisjur sem þá einnig væru settar yfir vit farþegans og þess vegna hafa fólk í geimbúningum í bílnum á leið í sóttkví ... Jóel A.

LÓAN ER KOMIN

Varasama ég veiru tel, víða dæmin sanni. En Lóu ekki líkar vel, að lúta ferðabanni. Kári

SAMMÁLA UM MANNRÉTTINDABROT Í TYRKLANDI

Það er rétt sem þú bendir á í grein þinni í Morgunblaðinu um Tyrkland. Fjölmiðlar okkar hafa engan vilja til að gagnrýna mannréttindabrot Tyrkja eða hegðun Tyrkja yfirleitt. Það var í aðsendri grein í Mogganum sem ég frétti af meðferð þeirra á dómurum sínum, en ekki í frétt. Núna hefur stór hópur hælisleitenda 35.000 segir alarabiya.net haldið til við landamæri Grikklands og reynt að brjótast í gegn með liðstyrk tyrkneska hersins sem skýtur táragasi að grískum landamæravörðum. Tyrkir sögðu  ... Ingibjörg Gísla.

KÓRÓNA OG TORTÓLA

Ef kórónaveiruna kallinn fær nú kominn á aldur og elliær já orðin lúinn þrekinu rúinn aðrir mættu nú líta sér nær.   ... Sultarlaun þar fólkið fær fjandi þunn er sneiðin kvóta hefðin er þeim kær og Tortóla leiðin. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

SPURT HVORT SÉ HREYFING EÐA FLOKKUR?

Mér líst vel á að efna til umræðu í sjónvarpsútsendingum um kvótamálin. Ef stofnuð verður streymirás, kvótannheim.is, eins og þú boðar, Þýðir það þá að verið sé að stofna nýjan stjórnmálaflokk (sem mér litist MJÖG vel á eða er þetta ekki flokkur heldur hreyfing sem er í burðarliðnum? Svar óskat... Sunna Sara

FRÁBÆRT FRAMTAK

Gott er að sjá snöfurmannleg viðbrögð við kórónaveirunni: Afboðun fundar í Kefkavík, sem ég held að hefði orðið mjög fjölmennur, en boða þess í stað sjónvarpsútsendingar! Svona á að bregðast við.  Nú bíð ég eftir því að vefsíðan Kvótannheim.is opni, eins og þú boðar um helgina! Jóhannes Gr. Jónsson

KVÓTANN HEIM OG KÓRÓNA

Köllum nú kvótann heim kíkjum á framsalið Þetta vonda villta geim virðist alveg galið. Veiru fjandinn víða fer váin er mætt á hlaðið Engin fyrir endann sér Icelandair fer í svaðið ... Höf. Pétur Hraunfjörð.