Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Júlí 2012

ÞAÐ VERÐUR AÐ HJÁLPA

Kæri Ögmundur ég biðla til þín að nota reynslu þína og manngæsku sem ég veit þú býrð yfir til að koma að máli Hjördísar Svan og börnum hennar þessi börn þurfa hjálp Íslenska ríkisins þau eru jú Íslenskir ríkisborgarar og þurfa málssvara ég hef þá trú að þú getir beitt þér fyrir þessu máli , því ég hef aldrey vitað að þú víkir þér undan ef þú mögulega getur hjálpað........ég er hvorki skyld né tengd þessum börnum á neinn hátt ég re bara Íslendingur sem get ekki horft uppá annað eins óréttlæti í garð þessa barna.

EKKI Á ALLT KOSIÐ

Icesave. Ráðherrann veit ekki í hvaða ríki EFTA-dómsóllinn er og kannski veit hann heldur ekki svo mikið um Icesave.

FRÁ NAFNLAUSUM

Tek fram að síðuhöfundur sér nafn mitt þó þetta sé nafnlaust. Ungur afkomandi minn var tekin í eitt skipti "með lítilræði af kannabis", honum var boðið að ljúka málinu með sekt sem send var með almennum pósti eftir að afkomandinn var kominn út á land til dvalar.

VILDUÐ EKKI SANNGIRNI BRETA OG HOLLENDINGA!

Er einhver ástæða til að ætla að EFTA-dómstóllinn verði hlutdrægur í sínum Icesave-dómi? Þannig leit þjóðin ekki á þegar hún ákvað að betra væri að málið færi í dóm heldur en að semja um það.

EKKI Í LÍFSHÆTTU Á ÍSLANDI

Ég ásamt þúsundum íslendinga skora á þig að beita þér fyrir því að mál telpnanna þriggja sem sendar voru úr landi með valdi síðast sunnudag verði endurskoðað og ég skammast mín að vera íslendingur þessa dagana, ekki voru þessi börn í lífshættu á Íslandi og þó foreldrar deili á það ekki að bitna á saklausum börnum, t.d segðu mér hvar var þessi "yndislegi" faðir þegar börnin voru tekin afhverju var hann ekki að taka á móti börnum sínum, enginn faðir sem þykir vænt um börnin sín lætur svona, og enn og aftur gerið eitthvað áður en það verður of SEINT.

ÞAR SEM ER REYKUR...

Vel má vera að Barnavernd sé ekki í þinni umsjá en dóms og réttarkerfið í heild sinni er það svo sannarlega.

BREYTA BER LÖGUM

Ágæti innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson. Ég undirrituð vil biðja þig að sjá til þess að mál systranna þriggja sem teknar voru burt af heimili sínu í Kópavogi fyrir helgi verði endurskoðað.

ALDREI NEITT HEYRST?

Fékk eftirfarandi póst frá þér: "Þú sparar ekki orðin en kemur hins vegar ekki fram undir fullu nafni - eða hvað? Feiminn? Kv.

SAKLAUS BÖRN

Heill og sæll Ögmundur. Ég skrifa þér vegna máls Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur. Ég þekki Hjördísi ekkert persónulega en tel mig knúna sem bæði Íslending og móður til að reyna að fá mál hennar heyrt af yfirvöldum.

AULA SKRIFAÐ BRÉF

http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/mikill-vidbunadur-logreglu-vegna-forraedismals-i-dag-vard-eg-vitni-ad-thvi-thegar-thrjar-litl Ég veit að það þíðir ekkert að nefna mannréttindi eða heilbrigða skynsemi við þig...en þetta mál gæti amk veitt einhver atkvæði fyrir þig.