Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

Athyglisvert er að upplifa það sem þú kallar söguleysi. Svokallaðir fréttamenn eru ýmist gúgglarar eða kranablaðamenn, karakterar sem myndu ekki einu sinni eiga heima í Lísu í Undralandi, sökum þess að þeir væru of fríkaðir.

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun.

ALLAN MINN STUÐNING!

Ögmundur. Það er átakanlegt að fylgjast með mannorðs-leigumorðingja-fjölmiðlum, hverju nafni sem þeir nefnast.

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum.

HRÓS SKILIÐ

Kæri, Ögmundur. Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli.

FAGLEGT? HLUTLAUST?

Eftir að hafa heyrt kvöldfréttir RÚV (9. feb) vil ég bæta aðeins við þann póst sem ég sendi fyrr á síðu þína.

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

Í fréttum í gærkvöld sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta.

MARKVISS FRAMSETNING?

Ég las í DV á áðan að þú hefðir bæði gagnrýnt bankana og keypt í þeim sem stjórnarformaður LSR. Nú þekki ég úr fjölmiðlum að þú gagnrýndir bankana.

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna.

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

Sæll Ögmundur.. Þórólfur heiti ég og er orðinn mjög lúinn Íslendingur á spilltu þjóðfélagi. Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka.