Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Apríl 2019

LÁTUM EKKI SVÍVIRÐINGAR TRUFLA OKKUR

Ég er algerlega sammála þér í morgun á Bylgjunni að nú er þörf á yfirvegaðri og ábyrgri umræðu um orkumálin og að láta ekki svívirðingatal manna á borð við Þorstein Víglundsson, varaformann Viðreisnar, trufla sig. Ég ætla því ekki að fara í hnútukast við hann enda dæma orð hans sig sjálf. Jóhannes Gr. Jónsson

NAUÐSYNLEGT AÐ AÐVARA ALMENNING !

Sæll Ögmundur, þakka þér fyrir skeleggan málflutning um þann vara sem verður að hafa á varðandi orkupakka 3 - algerlega nauðsynlegt að aðvara almenning. Vonandi verður hafin undirskriftarsöfnun á netinu á vegum þíns hóps sem fyrst. Kær kveðja, Nína Margrét

ER VERIÐ AÐ ÖGRA OKKUR???

Sæll Ögmundur Vek athygli þína á meðfylgjandi frétt.  https://viljinn.is/frettaveita/bandariski-flugherinn-i-framkvaemdir-i-keflavik-fyrir-taepa-7-milljarda/   Kanaherinn ætlar að leggja sjö milljarða í herframkvæmdir í Keflavík til viðbótar við þrjá milljarða sem búið var að ákveða. Þetta eru kaldar kveðjur. Á þetta bara að renna í gegn án nokkurrar umræðu? Kemur okkur þetta ekkert við? Er verið að ögra okkur? Ég bara trúi því ekki að þetta sé að gerast! Kveðja   https://viljinn.is/frettaveita/bandariski-flugherinn-i-framkvaemdir-i-keflavik-fyrir-taepa-7-milljarda/ KSS

AÐ SEGJA HVAÐ?

Um það hafði ekki hátt heldur var að segja landinn kaus lífstíls sátt lifa spart og þegja.   Höf. Pétur Hraunfjörð.

VOPNAHLÉ

Vopnahléi voru að lenda verkafólki illa gekk Kallast víst að kúvenda almenningur lítið fékk. Höf. Pétur Hraunfjörð.

VALKYRJAN DRÍFA OG SÖNGKÓR Á ALÞINGI

Flugfreyjur nú fengu styrk fólkinu vildi hlífa Á neyðarstundu virðist virk valkyrjan ´ún Drífa. Þar vandræðin ei virðast stór úr væntingum eru að springa Því alþingi reynir að stofna kór og auðvitað stjórnar Inga. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.