Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Apríl 2012

OG HVAÐ NÚ?

Og hvað nú Ögmundur. Eru stóru orðin þín og Steingríms um ESB aðildarviðræðurnar nú bara til "heimabrúks" eins og fyrri daginn, svona til þess eins að friða næsta flokksráðsfund VG og láta þar klappa fyrir ykkur einn ganginn enn ! Ég segi við ykkur ef þið látið ekki kné fylgja kviði núna og setjið Samfylkingunni stólinn fyrir dyrnar varðandi þessa ESB umsókn þá er úti um VG sem raunverulegt stjórnmálaafl í íslenskum þjóðmálum.

FORÐAST RÖKRÆÐUR?

Ögmundur. Þú sneiðir fram hjá því að rökræða efnislega um gagnrýni mína og gerir lítið úr henni, en reynir persónulega að bera af þér sakir um þjónkun og undirlægjuhátt við esb valdið ! Ekki stórmennskulegt !. Gunnlaugur Ingvarsson. . Á þessari síðu og í ræðu og riti annars staðar hef ég rækilega gert grein fyrir mínum sjónarmiðum.

MÆLIR MEÐ FROSTA

Kæri Ögmundur, . Fyrir þremur vikum mætti í Silfur Egils Frosti Sigurjónsson og talaði þar um hvernig bankarnir auka við gjaldeyrisforða þjóðarinnar (prenta rafpeninga) og hirða af því vexti.

ÞITT AÐ SLÍTA!

Það er þitt að slíta þessu Ögmundur og bæta þannig fyrir 3ja ára gamla misgjörð. Kveðja,. G.B.

ESB OG UMSÓKN ÍSLANDS

Þessi afstaða ESB til Íslendinga er móðgun við okkur öll sem eru með aðild og á móti aðild. Á meðan svo er krefst ég þess af ráðherrum í ríkisstjórn Íslands að þeir fyrir Íslands hönd dragi til baka umsóknina eins og ástandið er núna og geri það á næsta ríkisstjórnarfundi.

SÝNDARMENNSKA?

Sæll Ögmundur. Veit eiginlega ekki til hvers ég er eiginlega að reyna að skrifa þér vegna þess að ég er fyrir löngu alveg búin að missa alla trú á flokknum þínum og næstum alveg á þér sjálfum líka, þrátt fyrir allan látbragðsleikinn og sýndarmennskuna sem þú sýnir enn með tilþrifum af og til og maður er reyndar líka löngu farin að sjá í gegnum og því hættur að trúa.

SVO TALA ÞEIR UM OFSÓKNIR

Sæll Ögmundur.. Mörgum finnast yfirlýsingar þínar gagnvart kvótabröskurum vera nokkuð brattar. Hins vegar mætti rifja upp athyglisverðar upplýsingar sem fram koma í Akureyrarblaðinu Degi 5.febrúar 2000.

FUNDINN

Þakka svarið. Aðstandandinn er "fundinn" án aðstoðar opinberra aðila. Ég frétti úr undirheimum að hann væri í fangelsi.

AÐSTANDANDI HORFINN?

Sæll. Ég skrifa ekki undir nafni í þetta skipti en bendi lesendum á að síðuhöfundur getur séð nafn mitt. Það var hérna á árunum sem Pinocét var að slaka á klónum að það mátti sjá fréttamyndir af grátandi mæðrum á torgum Argentínu með innrammaðar ljósmyndir, aðallega af sonum sínum, sem höfðu horfið í hreinsunum stjórnarinnar.

RISAFUND Í HÖLLINNI!

Hvetjum Öryrkjabandalag Íslands til að halda RISABARÁTTUFUND í LAUGARDALSHÖLL 1. maí 2012 Hvetjum Reykjavíkurdeild Landsambands Eldri Borgara til að halda RISABARÁTTUFUND í LAUGARDALSHÖLL 1.