Það er oft erfitt að átta sig á framsókn. Ég man svo vel eftir því þegar Jón Sigurðsson, þá tiltölulega nýbúinn að setja fram afturvirka stefnubreytingu í stóriðjustefnunni, sagði að ákvörðun um stuðninginn í Írak, hefði verið byggð á röngum upplýsingum, og ákvörðunin þvi röng eða mistök.
Jón Torfason skrifar yfirlætisfulla grein hér á heimasíðu þinni Ögmundur um aðskilnað ríkis og kirkju. Þar skiptir hann fylgismönnum aðskilnaðar ríkis og kirkju innan VG í tvo flokka, annars vegar "Þingeyinga" sem berjast gegn afturhaldssemi kirkjunnar og hins vegar reitt ungt fólk.
Á landsfundi Vinstri grænna sem haldinn var um síðustu helgi bar að vonum mörg þjóðþrifamál á góma, flest mikilvæg fyrir einhverja en önnur þó léttvægari.
Þegar ég sé niðurstöður skoðanakannana síðustu vikna og set þær í samhengi við það sem ég hlera í heita pottinum, þá finn ég bæði meðbyr og mikinn stuðning við málstað Vinstri grænna.
Á næstu vikum verða tvennar þýðingarmiklar kosningar og má varla á milli sjá hvorar eru mikilvægari. Fyrst kjósa Hafnfirðingar um stækkun álversins í Straumsvík þannig að það verði um þrefalt stærra en það er nú – segi þeir já.
Rannsóknarfréttamenn eiga nú sitt blómaskeið því nóg er af félagsmálaklámi að taka þessa dagana. Byrgið og Breiðavík hafa með réttu komið til umræðu en í báðum tilvikum er spjótum einkum beint að vanhæfum stjórnendum, látnum og lifandi.
Ég þurfti að klípa mig í lærið til þess að komast að því hvort ég væri vaknaður eða ef til vill að dreyma, þegar ég heyrði fréttina á RÚV (sem bráðum verður hf.) um dóm yfir forstjórum olíufélaganna.
Íslensk stjórnvöld hafa lagalegum skyldum að gegna gagnvart öllum sjúklingum í landinu. Þetta á líka við um vímuefnasjúklinga og fólk með geðræn vandamál.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 30. janúar 2007 greiddi bæjarfulltrúi Vinstri grænna atkvæði gegn sameiginlegri tillögu Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að auglýsa deiliskipulagstillögu Arkís fyrir hönd álbræðslunnar í Straumsvík og gerði sérstaka grein fyrir atkvæði sínu með meðfylgjandi hætti: Bæjarfulltrúi Vinstri grænna greiðir atkvæði gegn því að samþykkja að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Arkís vegna fyrirhugaðrar stækkunar Alcan samkvæmt 25.