Fara í efni

Greinasafn - Frjálsir pennar

Apríl 2026

Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni

... Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma. Umræða um ESB hér á landi þarf að taka mið af þessari þróun. Við erum þegar í hernaðarbandalaginu NATÓ - því miður - og þurfum ekki að ganga til liðs við þjóðir sem eru að hervæðast og eru tilbúnar í stríð ...

STRÍÐIÐ Í BÍÓ

Snemma í apríl árið 2026 horfði ég á kvikmyndina Sound of Falling. Í mars sama ár sá ég Amrum og Jojo Rabbit sá ég nokkrum árum fyrr. Þessar ólíku en afar áhrifamiklu kvikmyndir eiga það ekki aðeins sammerkt að hafa verið sýndar í einu besta kvikmyndahúsi Evrópu, Bíó Paradís, heldur fjalla þær um lífið í skugga stríðs ...

ÞRÝSTINGUR Á ÍSLENDINGA AÐ GANGA Í EVRÓPUSAMBANDIÐ Hræðsla, ótti og pólitísk rök

Kári er ómyrkur í máli í þessari ítarlegu skýrslu sinni og klykkir út með þessari vísu: Veðrið mun lagast og verðurðu sæll, veglaus á ísalandinu. Afsalar frelsinu og endar sem þræll, í Evrópusambandinu.

Að mynda sér skoðun

Í opinberri umræðu á Íslandi virðist æ algengara að kröfur um fordæmingu komi á undan kröfum um skilning. Greinar, rannsóknir og skoðanir eru fljótt flokkaðar sem „góðar“ eða „slæmar“ á grundvelli einungis fyrirsagnar, og þeir sem setja þær fram dæmdir með ... Þannig afgreiddi Egill Helgason ítarlega og nokkuð vel heimildum studda grein Þórarins Hjartarsonar ...

HERVERNDIN SKAPAR ÓÖRYGGI

... Svo gerðist það eftir aldamótin að nýir valdapólar fóru samt að þróast og birtast á sviðinu: Fyrst og fremst Kína, síðan einnig Rússland eftir eymd og niðurlægingu Jeltsíntímans – og svo fleiri. Hnattveldið mikla, hegemóninn, gat ekki komið í veg fyrir slíka þróun í átt til „fjölpólunar“. Eftir stóð samt annar valkostur: að VIÐURKENNA EKKI þá þróun, og reyna að snúa henni við með valdi ...