9/11 – EÐA ELLEFTI Í NÍUNDA – AND WHAT FOLLOWED
Nine eleven kalla Bandaríkjamenn þennan dag og er nían fyrir september, níunda mánuð ársins en ellefu fyrir dagsetninguna. Við höfum það öfugt sem kunnugt er.
En öfugsnúin er líka minningin um þennan dag fyrir aldarfjórðungi. Bandaríkjamenn minnast þess og reyndar heimurinn allur að á þessum degi, ellefta september árið 2001, voru tvíburaturnarnir svokölluðu í New York sprengdir þannig að þeir hrundu til grunna og reyndar fleiri byggingar. Enn er margt á huldu um tildrögin en meira er vitað um afleiðingarnar þótt furðu fáir vilji um þær vita.
Með þessu hófst stríðið gegn hryðjuverkum “war on terror”. Föðurlandslögin, Patriot Act, litu dagsins ljós. Viku eftir turnahrunið lá fyrir frumvarp þessara laga á Bandaríkjaþingi og hafði það hlotið samþykki mánuði síðar. Fyrirhugað fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn/terrorista var einnig tilbúið!
Föðurlandslögin áttu að auðvelda bandarískum yfirvöldum að hafa hendur í hári föðurlandssvikara - óvina ríkisins - heima fyrir og um jarðarkringluna alla. Bandaríkin voru í stríði. Þá duga engin vettlingatök. Verkefnið væri að handsama hryðjuverkamenn hvar sem þá væri að finna og afhjúpa yrði samverkamenn þeirra.
Hugur minn er vissulega hjá því saklausa fólki sem lét lífið í turnasprengingunum þennan örlagadag fyrir réttum aldarfjórðungi. En einnig hjá þeim hundruðum einstaklinga sem saklausir voru handsamaðir og pyntaðir, margir hverjir árum saman, í pyntingabúðum Bandaríkjahers við Guantanamo flóa á Kúbu þar sem Bandaríkjamenn hafa herstöð. Ekki má gleyma dýflissum sem þjónar þeirra í öðrum álfum sáu þeim fyrir.
Fyrsti Guantanamófanginn var Máritaníumaðurinn Mohamedou Ould Slahi.
Hann kom hingað til lands í mars árið 2024 og talaði á fundi í fundaröðinni Til róttækrar skoðunar.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/um-guantamo-og-mennskuna-i-safnahusi
Með í för var dr. Deepa Govindarajan Driver, breskur háskólakennari og baráttukona fyrir mannréttindum. Sátu þau síðar fyrir svörum hjá Karli Héðni Kristjánssyni á Samstöðinni. Sama dag og fundurinn með þeim Mohamedou og dr. Deepu Govindarajan Driver var haldinn tók Bíó Paradís myndina The Mauritanian til sýningar og var áhrifaríkt þegar Mohamedou ávarpaði sýningargesti en myndin fjallar einmitt um hann. Hér að neðan eru slóðir sem vísa í umfjöllum um þessa heimsókn og þá einnig til viðtalsins á Samstöðinni.
Ég hef kynnst fleiri fyrrverandi Guantanamó föngum, mönnum sem rústaðir höfðu verið á sál og líkama með áralöngum pyntingum. Alþjóðleg stofnun sem ég á aðild að, Institute for the Public Interest, IPI, hefur staðið fyrir vitundarvakningu um hlutskipti þessara manna, meðal annars í Brussel, París og Osló.
For English readers:
9/11 became the justification for the US Patriot Act ( ready a week after 9/11. Guantanamo, the torture prison, was also ready!). A war had been declared, war on terrorism. Now it became imperative to find „terrorists“ and the Patriot Act was meant to help identify their collaborators, „enemies of the state“. The first Guanatanamo prisoner Mohamedou, was my guest at an open meeting in Reykjavík together with dr. Deepa Govindarajan Driver, a British academic and human rights defender. Here below is a link to an interview with Mohamedou and dr. Deepa Govindarajan Driver and also accounts of other former Guantanamo victims the Institute for the Public Interest, the IPI, where I am a member, has brought attention to.

Viðtalið á Samstöðinni, interview with Mohamedou and dr. Deepa Driver: https://www.youtube.com/watch?v=aA_zHarX8LY
IPI event in Paris:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/list-frelsun-art-liberation
Þá er það Mansoor Adayii. Hann hitti ég í Oslo í júní árið 2023 þegar IPI stóð fyrir fundi þar.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/med-fanga-numer-441
Ég man að lýsingar Mansoors á hlutskipti hans voru svakalegar eins og fram kemur í viðtali sem nú birtist við hann á fréttaveitunni Readers Supported News. Sakar ekki að gefa sér tíma til þess að lesa þessa frásögn.
Einhverjir hljóta að spyrja hvort þetta geti virkilega verið rétt. Jú þetta fær staðist og var reyndar eitt af því sem við getum þakkað Wikileaks fyrir að hafa fært fram í dagsljósið. Svo má ekki gleyma að stjórnendur í Guantanamo voru þeir sömu og stjórnuðu meðferð fanga í Írak – þið munið Abu Graib. Ég man og mun aldrei gleyma og fyrst Abu Graib var eins og myndir og frásagnir bera með sér þá er öllu trúandi.

En hafa Íslendingar ekki mótmælt? Jú það hafa þeir gert en eins og tíðkast þegar »vinaþjóðirnar» í NATÓ eiga í hlut og bera sök þá gerist það í kyrrþey. Eftirfarandi fann ég á heimasíðu minni þegar ég setti Guantanamó í leitarvél síðunnar. Lesi menn endilega, ekki síst orðalag stjórnvalda:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/rikisstjornin-motmaelir-mannrettindabrotum-i-guantanamo-i-kyrrthey
---------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)