Fara í efni

SKOÐANIR OG SKOÐANIR Á SKOÐUNUM Á VÍSI.IS

Vísir heldur úti virðingarverðum vettvangi fyrir skríbenta og lesendur. Vettvangurinn, sem heitir einfaldlega Skoðun, er býsna opinn og auðvelt að koma þar sjónarmiðum á framfæri.
Nú fer umræða um ESB aðild Íslands væntanlega á fullan skrið vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mikilvægt er að vel takist til og að umræðan verði málefnaleg.

Í morgun blöstu við tvær greinar í skoðanadálki Vísis sem tengdust þessu málefni.

Annars vegar grein Guðmundu G. Guðmundsdóttur, ESB-Pakkinn, um Evrópusambandið þar sem hún hvetur til þess að hver og einn kíki í pakkann, það þurfi ekki að bíða eftir viðræðum til þess að sjá út á hvað regluverk ESB gengur. Sérstaklega staðnæmist hún við samræmda utanríkisstefnu ESB og fer um hana gagnrýnum orðum.

Hins vegar skrifar Kristján Reykjalín Vigfússon, lektor í Háskólanum í Reykjavík og doktor í stefnumótun. Hans grein ber titilinn Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB og er hér :

https://www.visir.is/g/20262888437d/audvaldid-populismi-hestaskeifan-esb

Í þessari grein er það gert sem mér finnst að eigi að forðast, nefnilega að skilgreina fólk  nánast út úr umræðunni; að það sé handbendi annarra eða eigi heima í dæmasafni stjórnmála- og félagsfræðinga um tiltekna tegund fólks. Í stað þess að okkur sem andvíg erum aðild Íslands að ESB sé mætt með málefnalegum andsvörum komsast menn ekki lengra en að segja okkur hver við séum og hvernig við pössum inn i skilgreiningar tiltekinna fræðimanna.
Nú er staðreyndin sú að við sem stöndum að samtökunum Til vinstri við ESB, og þar erum við Guðmunda félagar, höfum á fjölda funda og í greinaskrifum reynt að færa málefnaleg rök fyrir því hvers vegna við teljum að félagshyggjufólk ætti að leggast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ekki göngum við erinda neinna annarra en okkar sjálfra, reynum að forðast öfgar og órökstuddar staðhæfingar þótt auðvitað kunni sitthvað endrum og eins að vera sagt í hita leiksins.
Og varðandi hestaskeifuna margfrægu sem háskólalektorinn vísar til, þar sem nálgist hægri og vinstri, þá tel ég þessa vinsælu myndlíkingu færa okkur fátt að innihaldi til. Ef hópur vinstri manna gagnrýnir markaðsvæðingu innviða en hópur hægri manna gagnrýnir miðstýringu þá má vissulega til sanns vegar færa að sameiginlega gagnrýni þeir miðstýrt markaðskerfi. En þar skilja líka leiðir.
Dæmi um málefnalegan málflutning er grein Guðmundu en hún hefur lagt sig eftir að finna orðum sínum og sjónarmiðum stað í heimildum. Vissulega er öllum frjálst að hafa skoðun á skrifum hennar en þakkarvert væri að þær gengju út á annað en segja henni og okkur sem fylgjum henni að málum hver hún sé og hver við séum og hverra erinda við göngum.
Ef við öll hefðum þennan hátt á kæmumst við aldrei lengra en að hafa skoðun hvert á öðru en málefnin yrðu þar með að aukaatriði.
Varla viljum við að það gerist.

Hér er slóð á grein Gðumundu, ESB-pakkinn, og fyrir neðan hana greinin sjálf: https://www.visir.is/g/20262888258d/esb-pakkinn :

ESB-PAKKINN

Komið og skoðið í pakkann með mér, ég er nörd og hef verið að skoða kosti og galla við að ganga í Evrópusambandið. Það þarf nefnilega ekki að segja JÁ í ágúst til að „skoða pakkann“, það kostar okkur tæpa 2 milljarða og kosningarnar sjálfar um 6–700 milljónir að lágmarki, en við getum flakkað vítt og breitt um netið nánast alveg ókeypis.

Blessaður kaffibollinn
Byrjum á að fá okkur kaffi.
Hvað kaffið kostar er ekki spurning um verð eða hvort það sé ódýrara hér eða í öðrum löndum.
Þegar við förum til Bjarna Harðar í Bókakaffi á Selfossi og fáum okkur kaffi er það til að njóta þess að sitja á Bókakaffi, ég hef ekki hugmynd um hvað kaffið kostar þar enda skiptir það ekki máli því við erum að njóta, leyfa okkur.
Stundum fáum við okkur bakkelsi hjá Almari Bakara í Hveragerði eða á Selfossi þá er kaffið frítt með, enda erum við þá aðallega þar til að kaupa bakkelsið.
Þegar við kaupum kaffi í Olís fáum við kaffið á 65 kr því við erum í 4x4, þá vantar okkur orku til að takast á við umferðina og lætin í bænum eða til að hafa með yfir heiðina heim, það er stundum lífsnauðsyn.
Hér skal líka hafa í huga að við erum fámenn þjóð lengst úti í hafi, flutningskostnaður er hár og vegna þess hvað við erum „lítil“ þá fáum við ekki eins góða díla og aðrar þjóðir, skiljanlega.
Þegar við fórum til Frakklands 2008 var verðlag svipað og hér, fór eftir því í hvaða búðir eða kaffihús þú fórst.
Hvað kaffihús í miðbænum rukka fyrir kaffi fer eftir eftirspurn, það er aðallega eftirspurn og upplifun sem hefur áhrif á verðlag ekki hvort þú ert í ESB eða ekki.
Svo þessi stormur í kaffibolla landsmanna hvað svo sem hann kostar er úr lausu lofti gripin því verð á kaffi er afstætt.
Kaffibolli í Portúgal kostar um 1,50 evrur (216kr), en í Danmörku þarftu að borga um 4 evrur (577kr) sjá Verð á kaffibolla í miðbæ Reykjavíkur er 650 til 1200 (4,51 til 8,32 evrur) samkvæmt Wolt

Staða Íslands
Samkvæmt Evrópusambandinu er Ísland ekki með stöðu umsóknarríkis, „Í mars 2015 fór ríkisstjórnin fram á að „Ísland skyldi ekki teljast umsóknarríki um aðild að ESB“. Það getið þið séð hér, en samt í skýrslu sem ESB lét gera vegna áhuga núverandi ríkisstjórnarinnar kemur fram að „umsókn Íslands hefur aldrei verið formlega dregin til baka; henni hefur aðeins verið frestað“
Getum við treyst Evrópusambandinu? Ekki geri ég það.

Utanríkisstefna ESB
Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma og skrifaði ég grein um áhyggjur mínar af því sem er kallað „hernaðarlegt Schengen“ ( ‘Military Schengen.')

ESB og Ísrael
ESB hefur staðið með Ísrael þrátt fyrir að Amnesty biðli til ESB um að hætta að styðja Ísrael
Þrátt fyrir tillögur um frystingu á samstarfssamningi ESB og Ísraels sem 1.200.786 Evrópubúar undirrituðu, ákváðu utanríkisráðherrar ESB að fresta tillögum um fulla riftun samningsins, en sambandið hefur áður lagt til frystingu á viðskiptatengdum ívilnunum og fjárframlögum. ESB heldur hins vegar áfram að styrkja Ísrael á ýmsum sviðum og sér þess víða stað í skýrslum.
ESB veitir Ísrael þannig pólitíska og fjárhagslega aðstoð vegna háþróaðrar efnahagsþróunar Ísraels. Að meðaltali nemur þetta sem til dæmis segir frá hér um 1,8 milljónum evra styrk á ári, til samstarfsverkefna í menntatekerfi og stjórnsýslu. Hernaðarstuðningurinn er hins vegar miklu meiri að vöxtum og fer þar minna fyrir gagnsærri skýrslugerð.

 

Utanríkisstefna ESB er ekki okkar
Ef við göngum í ESB þá tökum við upp utanríkisstefnu ESB og þar með þátt í þvingunaraðgerðum gegn Evrópubúum sem voga sér að vera ósammála ESB.
"Nú er það að gerast að Evrópusambandið er að færa sig upp á skaftið og beita þvingunaraðgerðum inn á við, gagnvart eigin þegnum og einnig þegnum annarra Evrópuríkja. Sviss er þar dæmi um en þekkt er bannfæring Evrópusambandsins á rihöfundinum og greinandanum Jacques Baud, sem gagnrýnt hefur NATÓ og Evrópusambandið í tengslum við Úkraínustríðið, og Svisslendingnum Natalie Yamb sem gagnrýnt hefur Frakka fyrir að reka nýlendustefnu í Afríku. Hún er upphaflega frá Kamarún en með svissneskt ríkisfang"
Úr grein eftir Ögmund Jónsson
Ég vil ekki í þennan pakka.

Ferlið: þetta er Aðildarsamningur það getið þið séð í bæklingi sem ESB gaf út 2011
Látum nördinu lokið að sinni en það er af nógu að taka. Allar síðurnar (linkarnir) geta leitt ykkur út og suður en vonandi aftur heim eða eins og rússneskt máltæki segir „Maður kemst á heimsenda á lyginni en ekki heim aftur“.
Þið þurfið ekki að vera sammála mér en höfum það rétt sem við höldum fram og helst linka á viðurkenndar síður til að staðfesta það.
Góða skemmtun

PAKKINN

Viljið þið skoða með okkur í ESB-pakkann
Sjá hvað þar leynist, þarf ekki já
farðið úr skónum og takið af ykkur jakkann
Því á netinu margt gagnlegt má sjá

Segir þú JÁ við aðlögun hefjum
En segir þú NEI við stolt frá fögnum
Kannski góðan samning fram merjum
Það ósennilegt samkvæmt öllum gögnum

Farið í sumar og sjáið landið
Kraftinn í fossum og friðsaman lækinn
Sveitina, kýrnar og fallega lambið
Við erum rík, sjáðu arf þinn.

Ítarefni Alþingis má skoða hér
Síða Evrópusambandsins skoða vel
Evrópuvefinn höfum við hér
Vef Heimssýnar, manni verður ekki um sel

Höfundur er í stjórn Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB, og í Samtökum Hernaðarandstæðinga

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)