Fara í efni

RITSKOÐUN ÁGERIST Í EVRÓPUSAMBANDINU

Evrópusambandið beitir sem kunnugt er þvingunum, "unilateral coercion” gegn “óvinum “ sínum. Þessar þvinganir eru í allflestum tilvikum ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum. Flestar eru þær í góðri samvinnu við Bandaríkin. Íslenska ríkisstjórnin hefur nýlega skuldbundið Ísland - okkur - að fylgja öllum þvingunum sem ESB ákveður að beita "óvini" Sambandsins! Þetta gerði ríkisstjórnin umræðulaust - í það minnsta varð ég ekki var við þá umræðu. 

Nú er það að gerast að Evrópusambandið er að færa sig upp á skaftið og beita þvingunaraðgerðum inn á við, gagnvart eigin þegnum og einnig þegnum annarra Evrópuríkja. Sviss er þar dæmi um en þekkt er bannfæring Evrópusambandsins á rihöfundinum og greinandanum Jacques Baud, sem gagnrýnt hefur NATÓ og Evrópusambandið í tengslum við Úkraínustríðið, og Svisslendingnum Natalie Yamb sem gagnrýnt hefur Frakka fyrir að reka nýlendustefnu í Afríku. Hún er upphaflega frá Kamarún en með svissneskt ríkisfang.
Nú er smám saman að koma fram í dagsljósið í þessu samhengi nafn Hüseyin Doğru, þýsks blaðamanns sem settur hefur verið út af sakramentinu - utan dóms og laga - einfaldlega með ákvörðun stjórnar ESB. Greiðslukortum hans hefur verið lokað, ferðabann sett á hann og strangt eftirlit með öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Ég átti samræðu við Hüseyin Doğru í dag og er ég sleginn að heyra hversu langt er gengið í ofsóknum á hendur honum. Furða ég mig á hve hljótt er um mál hans og annarra í svipaðri stöðu í evrópskum fjölmiðlum. Hér á landi virðist lítill áhugi á fasískum tilhneigingum innan Evrópusambandsins. Það eru mín orð, ekki viðmælanda míns.  

Fjölmiðlar og mannréttindasamtök hafa farið sér hægt við að taka mál hans upp enda ljóst að þessi aðferðafræði er farin að hafa tilætluð áhrif: Vogi menn sér að gagnrýna valdið – hlutdeild Þjóðverja og ESB í þjóðarmorðinu á Gaza í þessu tilviki, gætu þeir stefnt sjálfum sér í hættu. Þannig er ritskoðun ætlað að virka.
Röksemdir ríkisvaldsins eru ekki beisnar: Með því að grafa undan trúverðugleika ESB og Þýskalands sérstaklega, sé skapaður glundroði og hverjum skyldi slíkt gagnast best? Pútín að sjálfsögðu! Og þar sem tveir plús tveir eru fimm hlýtur maðurinn að vera rússneskur útsendari enda mun hann hafa unnið, eða einhver samstarfsmaður hans, á fjölmiðli sem tengdist rússneskum fjölmiðli. Nú vill svo til að Hüseyin Doğru hefur margoft gagnrýnt Rússland og stríðsreksturinn í Úkraínu jafnframt því sem hann hefur gagnrýnt heimsvaldastefnu Evrópusambandsríkja og Bandaríkjanna, ekki síst í tengslum við þjóðarmorðið á Gaza. Allt bendir til þess að um hið síðara fjalli málið, að þagga niður gagnrýni vegna þjóðarmorðsins, en látið svo heita að verið sé að taka á óvini í stríðinu við Rússland!


Hér er slóð á grein eftir Hüseyin Doğru svo og youtube þáttur þar sem þeir ræðast við, hann og gríski stjórnmálamaðurinn Yanis Varoufakis: 

https://diem25.org/how-the-eu-is-using-anti-russia-sanctions-to-criminalise-journalism/

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)