NEVROZ: BARÁTTUANDI OG FÖGNUÐUR YFIR VORKOMUNNI
Í kvöld lauk ég nokkurra daga veru i Strassborg, þar sem Evrópuráðið hefur höfuðsetur – vel að merkja ekki Evrópusambandið – með því að taka þátt í Nevroz hátíðahöldum Kúrda í miðborginni en á þessum tíma árs fagna þeir vorinu bæði í Kúrdistan og víðs vegar um heiminn. Nevroz sameinar fögnuð yfir vorkomunni og baráttuanda og frelsisþrá Kúrda. Myndir af hinum fangelsaða leiðtoga Kúrda, Abdullah Öcalan eru aldrei langt undan.

Þess má geta að Kúrdar á Íslandi koma saman á sunnudag (22.mars) í Salnum í Kópavogi og hefur mér verið boðið til þeirrar samkomu og hlakka til að mæta.

Sarah Glynn hefur tekið saman sögu Nevroz í stuttum en fróðlegum bæklingi sem má nálgast hér: Nevroz
Ég hef nokkrum sinnum sótt Nevroz hátíðir Kúrda, þar á meðal fjölmennasta útifund sem ég hef sótt, milljón manns í Diyarbakir í suð-austur Tyrklandi. Á þessu svæði eru Kúrdar í yfirgnæfandi meirihluta: https://www.ogmundur.is/is/greinar/a-thjodhatid-i-kurdistan
Fyrir réttum átta árum, 20. mars 2018 var ég svo í Strassborg. Tveimur dögum áður höfðu Tyrkir ráðist á Afrin í Sýrlandi en í kjölfarið hófust miklar ofsóknir á hendur Kúrdum þar. Erdogan kallaði morðárásina Operation Olive Branch – friðargreinina – en NATÓ forstjórinn Stoltenberg sagði síðan að menn yrðu að hafa í huga að Tyrkland mætti verja sig. Væntanlega í anda vestrænna (nýlenduvelda) gilda:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/a-utifundi-i-strasbourg-gegn-ofbeldinu-i-afrin
https://www.ogmundur.is/is/greinar/nato-ver-thjodernishreinsanir-i-afrin 
Það var skemmtilegt að fylgjast með Kúrdum gleðjast í Strassborg í kvöld.
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)