Fara í efni

VINSTRIÐ AÐ REISA SIG GEGN ESB AÐILD

Í byrjun árs sáust starx merki þess að Vinstrið væri að reisa sig í Evrópusambandsumræðunni.

Í kjölfar opins fundar á vegum fundaraðarinnar Til róttækrar skoðunar í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í byrjun janúar var haldinn stofnfundur samtakanna Til vinstri við ESB.

https://www.ogmundur.is/is/greinar/esb-fekk-falleinkunn-um-helgina-fullt-ut-ur-dyrum-i-thjodmenningarhusi-vinstri-menn-stofna-felag 

https://www.visir.is/g/20262827289d/stofna-ny-sam-tok-gegn-esb-adild

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/01/10/vinstrimenn_stofna_samtok_gegn_esb_adild/

Upptaka af fundinum í Þjóðmenningarhúsinu 10. janúar. ESB: frá samvinnu til miðstýringar. https://www.ogmundur.is/is/greinar/upptaka-af-fundi-um-esb-fra-samvinnu-til-midstyringar

Síðan hefur hver atburðurinn rekið annan, á ný var boðað til opins fundar á Akureyri á vegum Til róttækrar skoðunar og í kjölfarið varð til deild Til vinstri við ESB á Norð-austurlandi. https://www.ogmundur.is/is/greinar/esb-vegferdin-varasom-og-olydraedisleg 

Síðastliðinn sunnudag var það svo Til vinstri við ESB sem boðaði til opins fundar á Selfossi og í kjölfarið var stofnuð Suðurlandsdeild samtakanna og má sjá formann samtakanna, Þorstein Bergsson ávarpa þann fund á myndinni hér að ofan en honum á visntri hönd er Þorleifur Gunnlaugsson ein helsta driffjöður að öllu þessu fundahaldi. Á neðri myndinni er Bjarni Harðarson bókaútgefandi á Selfossi en hann lét að sér kveða á báðum fundunum, hinum opna og einnig stofnfundi Til vinstri við ESB á Selfossi. 

VG: „Íslandi betur borgið utan ESB“



Síðan er frá því að segja að á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, sem nýlega var haldinn, var ítrekuð stefna flokksins um að Íslandi væri betur borgið utan ESB.

Gott er til þess að vita að VG muni beita sér í þessum anda, ráðleggja fólki að greiða atkvæði gegn þeim aðildarviðræðum við  ESB sem Viðreisn beitir sér hvð ákafast fyrir. 

----------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti.
Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)