ÞÓRARINN OG NEISTAR - JEFFREY SACHS OG YOUTUBE
Í dag birti ég hér á síðunni tvær fréttir þar sem rýnt er í heimsmálin með Íran í brennidepli. Annars vegar er það viðtal við hinn heimskunna stjórnmálaskýranda Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia University í Bandaríkjunum. Hann er sem fyrri daginn ómyrkur í máli og lýsir því hvernig valdstjórnarríkin vestrænu bera sig að við að skipta út ríkisstjórnum sem ekki hlýða þeim. https://www.ogmundur.is/is/greinar/sachs-on-the-gangsters-in-the-white-house-and-a-europe-without-principles
Hin umfjöllunin er grein Þórarins Hjartarsonar sem birtist hér á síðunni í málaflokknum Frjálsir pennar. Þar er Íransferlið rækilega rakið og hvet ég alla lesendur til þess að gefa sér tíma til að lesa þess grein Þórarins. Orðum og gjörðum Trumps og félaga hefur almenningur verið að kynnast en almennt áttar fólk sig síður á fylgispekt og þátttöku Evrópuríkja í ofbeldisherför hans. Þessu gerir Þórarinn á meðal annars grein fyrir í umfjöllun sinni. Með öllu er mér óskiljanlegt að nokkur maður á Íslandi vilji eins og málum er nú komið ganga inn i þennan siðlausa söfnuð.
https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/valdaskiptatilraun-i-iran-drama-i-fjorum-thattum
Í mínum huga er það nánast skylda að reyna að halda sér vakandi og láta fjölmiðlaheiminn ekki ljúga sig stútfullan. Vissulega á þetta ekki við um alla fjölmiðla – en flesta meginstraumsfjölmiðla. Að mínu mati er það svo. Þeim verður tíðrætt um falsfréttir en flytja þær sjálfir án afláts og veikja þar með sjálfstæða dómgreind hlustenda sinna og lesenda. Af þessu stafar síðan lýðræðinu ógn.
Þeir tveir menn sem ég hef hér vísað til reyna að halda sig við fjölmiðla sem vilja leita sannleikann uppi.
Þórarinn Hjartarson skrifar reglulega á netmiðilinn Neista, það er, neistar.is en Sachs birtist í youtube þáttum hjá aðskiljanlegum vönduðum fyrirspyrjendum. Jeffrey Sachs hefur nú opnað eigin youtube rás þar sem menn geta nálgast efni frá honum.
Eftirifarandi fékk ég sent frá starfsfólki Jeffrey Sachs og birti hér vilji menn gerast áskrifendur að efni frá honum.
Í framhjáhlaupi vil ég áður minna á að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar síðu og leyfi ég mér að hvetja lesendur til þess að gera það. Þá fá þeir efni síðunnar reglulega sent til sín – fljótgert að henda því ef svo ber undir en á hinn bóginn reyni ég að veita aðgang að eftirsóknarverðu og vekjandi efni og koma upplýsingum á framfæri um athyglisverða fundi, bæði þá sem ég stend að eða aðrir, einstaklingar eða samtök og nefni ég þar sérstaklega Málfrelsisfélagið. Málfrelsisfélagið er ekki pólitískt eins og Neistar en á það sameiginlegt með þessu vinstrisinnaða vefriti að vilja standa vörð um málfrelsi og ritfrelsi. Félagið gefur út vefritið https://krossgotur.is/
Announcing Jeffrey Sachs' YouTube Channel
Dear Friends,
I’m pleased to share that Professor Jeffrey Sachs has launched a YouTube channel, a new space where you can find his latest talks, interviews, lectures, and original video content—all in one place.
Jeff is doing this as a free service for all interested viewers in response to the extraordinary proliferation of fake, AI-generated videos of Jeff on YouTube in recent months. This website will be verified material, and the only verified site, other than interviews of Jeff posted by other known outlets.
Please consider subscribing (no charge and no obligations, of course!). Reaching 100,000 subscribers will be an important milestone, as it will allow the channel to receive official YouTube verification—helping ensure this remains the trusted, authorized source for his content.
👉 Subscribe here: https://www.youtube.com/@JeffreyDSachsOfficial
Thank you, as always, for joining Jeff in a global community committed to peace and sustainable development.
----------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)