SACHS ON THE GANGSTERS IN THE WHITE HOUSE AND A EUROPE WITHOUT PRINCIPLES
Vonandi gefa sem flestir sér tíma til þess að horfa á þetta viðtal norska rannsóknarprófessorsins Glens Diesen við stjórnmálarýnandann heimskunna Jeffrey Sachs.
Sachs rekur hér hvernig Bandaríkjastjórn reynir allt sem hún getur til þess að grafa undan efnahag Írans, stuðla að óeirðum í landinu og senda síðan inn vopn og mannskap til manndrápa. Áður hefur komið fram að aðsendu morðingjarnir eru í það minnsta á vegum ísraelsku leyniþjónustunnar, Mossad og. Þekkt af endemum þessu til staðfestingar eru ummæli Pompeos fyrrum yfrmanns CIA og utanríkisráðherra BNA – þess manns sem fékk ríkisstjórn Íslands til að fallast á stjórnarskipti í Venesúela um árið!
Ofbeldisaðgerðir íranskra stjórnvalda til þess að brjóta mótmælin á bak aftur vekja síðan óhug á Vesturlöndum og og er þar kallað eftir hernaðaríhlutun. Nákvæmlega það er nú að gerast og tek ég undir það með Jeffrey Sachs hvert áhyggjuefni það ætti að vera öllum hve vesöl Evrópa er, án nokkurrar staðfestu, án nokkurra prinsippa, þvert á móti þáttakandi í ofbeldinu. Æst og vígafús.
https://www.youtube.com/watch?v=sYAW_XvvreU
----------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)