Fara í efni

ÁGÆTI RÍKISSAKSÓKNARI !

Þetta eru ávarpsorðin í bréfi Árna Guðmundssonar,  æskulýðs- og tómstundafulltrúa í Hafnarfirði í bréfi sem hann hefur skrifað embætti ríkissaksóknara. Tilefni þess að Árni skrifar embættinu er krafa hans um að fjölmiðlar sem brjóta lög um bann við áfengisauglýsingum verði látnir svara til saka.  Yfirlýsingar Kára Jónassonar, ritstjóra Fréttablaðsins í útvarpsviðtali nýlega eru merkilegar fyrir þá sök að fyrir hönd fréttamiðils síns viðurkennir hann lögbrot.  Þetta er í sjálfu sér heiðarlegt af hans hálfu. En finnst ríkissaksóknara það vera í lagi að brjóta lögin?

Eftirfarandi er bréf Árna Guðmundssonar til ríkissaksóknar.

Ágæti ríkissaksóknari
Í síðdegisþættinum á útvarpsstöðinni  Talstöðinni  föstudaginn 28. október árið 2005,  þar sem fjallað var um áfengisauglýsingar, viðurkenndi fréttastjóri Fréttablaðsins Kári Jónasson með skýrum og afdráttarlausum hætti í heyrandi hljóði að blaðið birti áfengisauglýsingar.
Við sem sent höfum embætti yðar ábendingar um slík lögbrot undanfarin misseri barst þarna óvæntur liðsauki enda verður ekki annað séð en að málið teljist þar með upplýst. Fram eru komnar formlegar ábendingar um lögbrot og fyrir hendi liggur afdráttarlaus játning. Undirritaður gerir því ráð fyrir  að embætti yðar grípi til viðeigandi ráðstafana.  Samkvæmt lögum eiga  börn og unglingar rétt á því að vera laus við auglýsingar af þessum toga og skora ég á embættið að gera gangskör í þessum málum til þess að svo megi verða.
Virðingarfyllst.
Árni Guðmundsson 
Hjallabraut 84
Hafnarfirði   

Hér er bloggsíða Árna: http://addigum.blogspot.com/

Og hér eru nokkrar tilvísanir í fyrri umfjöllun  hér á síðunni um þetta efni og kemur Árni Guðmundsson þar oft við sögu: 
https://www.ogmundur.is/is/greinar/islenskir-bjorframleidendur-grafa-undan-logum
https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvernig-svarar-akureyrarbaer-arna
https://www.ogmundur.is/is/greinar/gott-framtak-gegn-afengisauglysingum
https://www.ogmundur.is/is/greinar/tekid-ofan-fyrir-arna-i-hafnarfirdi