Fara í efni

YFIRLÆKNIR MINNIR Á GRUNNFORSENDUR VELFERÐAR

Efnt hefur verið til umræðu um stöðu þjóðfélagshóps sem stendur hvað höllustum fæti í Íslensku samfélagi.

Þetta er heimilislaust fólk sem glímir við heilsuvanda.

Kveikjan að umræðunni er skýrsla Rótarinnar, Bráðaþjónusta við heimilislausa einstaklinga – Komur á bráðamóttökur Landspítala á tímabilinu 2020–2024.

Í rannsóknarskýrslu Rótarinnar kemur í ljós að þessi hópur leitar til bráðamóttöku Landspítalans hlutfallslega langt umfram það sem fólk gerir sem býr við betri aðstæður.

Vefmiðillinn vísir.is tók þessi mál til skoðunar og ræddi við Mikael Smára Mikaelsson, yfirlækni á bráðamóttöku Landspítalans auk þess að vitna í aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið og sýna fram á erfiðleika við að sinna umræddum hópi.

Skiljanleg væru viðbrögð forsvarsmanna stofnana sem eru fjárhagslega aðþrengdar - eins og Landspítalinn og þar með bráðamóttakan er - að fárviðrast út í þann hóp sem þrengir að starfseminni umfram aðra, segja sem svo að þarna sé hópur sem eyðileggi fyrir öðrum; hví ætti þetta fólk að njóta hlutfallslega meiri þjónustu en aðrir.

Þetta voru hins vegar ekki viðbrögð Mikaels Smára Mikaelssonar, yfirlæknis á bráðamóttöku Landspítalans. Fjarri lagi. Viðtalið við hann þótti mér endurspegla þau grunngildi sem „velferðarþjónusta fyrir alla „ hvílir á. Viðhorf yfirlæknisins eru eins langt og hugsast getur frá þeirri hugsun sem gerist sífellt ágengari í samtímanum og hefur til hliðsjónar fjárhagslega og félagslega stöðu þeirra sem sækjast eftir aðstoð í stað þess að spyrja hvað bjáti á og hvernig megi koma til hjálpar.
Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að ef það eigi að vera markmið að fækka komum heimilislausra á bráðamóttöku spítalans þurfi að vera til aðrar leiðir fyrir hópinn til að sækja þjónustu sem sé þeim greið. Hann segir alla eiga að geta leitað á bráðamóttökuna og starfsfólk vilji þjónusta fólk vel og hratt:

„Við veitum þjónustu til allra og reynum að gera það eins vel og aðstæður leyfa,“ segir Mikael Smári í samtali við fréttastofu …

Ef fækka á komum til okkar, ef það er tilgangur, þá gerist það ekki nema þau hafi aðgang að einhverju öðru sem þeim finnst betra. Það er ekkert flóknara en það. Fólk fer þangað sem því líður vel eða það telur sig þurfa …

Við viljum reyna að veita góða þjónustu við alla, hver sem það er eða hvar sem þau eru stödd í samfélaginu eða hvaða vandamál sem þau hafa. Auðvitað er nálgunin mismunandi eftir þörfum og vandamáli dagsins …

Það er ekki nóg að setja þjónustuna upp bara einhvers staðar þar sem þau geta ekki sótt hana eða komast ekki í hana eða þurfa að fara í gegnum einhverjar flækjur. Við þekkjum fólk í bráðum vanda, það vill fá aðstoð fljótt og þau fara þangað sem er auðveldast að fá hana. Við erum öll mennsk og við fylgjum og gerum það sem við kunnum ef það er skiljanlegt fyrir okkur.“

Skýrsla Rótarinnar verður að fá verðuga umfjöllun í fjölmiðlum og stjórnvöld þurfa að taka til alvarlegrar skoðunar þær tillögur sem fram eru settar um betri samhæfingu, styrkingu úrræða, samfellu við útskrift, húsnæðisstuðning og úrræði sem byggja á gögnum og raunverulegri þörf.

Ég hvet lesendur til þess að lesa eftirfarandi umfjöllun á vísi.is. Hún er upplýsandi og einstaklega uppörvandi að sjá viðhorf af því tagi sem koma fram hjá Mikael Smára Mikaelssyni, yfirlækni á bráðamóttöku Landspítalans.

Umfjöllun Vísis: https://www.visir.is/g/20262905113d/-alltaf-litid-a-thetta-sem-eitt-hvad-sem-bradamottakan-gerir-

-------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)