Fara í efni

VONIN SITUR VERJULAUS Á VOTUM TINDI

Orð vel við hæfi í upphafi bókar sem fjallar um átök um Ísrael og Palestínu og um «Mið-Austurlönd í hnotskurn» eins og segir á forsíðu nýútkominnar bókar Hauks Ólafssonar, BYSSAN OG ÓLÍFAN.

Í upphafi bókar sinnar sýnir höfundur lesendum sínum eins konar framvindukort af Ísrael og Palestínu. En áður fáum við í veganesti vísu eftir Margréti Pálmadóttur á Sauðafelli (1866-1935).

Vonin situr verjulaus á votum tindi,
skelfur fyrir skúr og vindi,
skal hún hvergi festa yndi?

Bókin er mikil að vöxtum en þeirrar tegundar að hún býður upp á að lesinn sé kafli og kafli. En eftir að ég byrjaði að lesa, einmitt með því að blaða í bókinni, er hún farin að kalla á mig enda hefur hún að geyma mikinn fróðleik auk margra vísdómsorða.

Þannig veltir höfundur því fyrir sér í upphafi vegferðar sinnar hvort yfirleitt sé hægt að gæta þeirrar hlutlægni sem hann greinilega vill hafa að leiðarljósi. En þrátt fyrir þann ásetning megi skrásetjarar aldrei verða hlutlausir gagnvart ranglæti. Hér kallar Haukur til vitnis ekki minni menn en Robert Fisk og Graham Greene.
Blaðamaðurinn Robert Fisk (1946-2020) , sem starfaði áratugum saman í Mið-Austurlöndum hafi sagt að höfundar um söguleg málefni ættu að gæta hlutleysis og óhlutdrægni eftir því sem kostur væri „ en maður ætti eigi að síður að vera hliðhollur þeim sem þjást.» Þá minnir Haukur á að í bók sinni The Quiet American, sem gerist í Víetnam á dögum franskrar nýlendustjórnar þar, bendi breski rithöfundurinn Graham Greene (1904-1991) á að «fyrr eða síðar sé nauðsynlegt að taka afstöðu ætli maður að vera mannlegur.».
(
Byssan og Ólífan bls 21).

Haukur Ólafson hefur starfað í utanríkisþjónustu Íslands í áratugi og verið á póstum um víða veröld. Ég hefði haldið að sú reynsla hefði tilhneigingu til þess að þrýsta mönnum inn í þurrt skýrslugerðarform. En að sjálfsögðu eru undantekningar þar á og er þessi höfundur skínandi dæmi um það.

Ég hlakka til að lesa meira í bók Hauks Ólafssonar um byssuna og ólífuna en treysti mér þegar til þess að mæla með henni. Þótt ég eigi margt ólesið þá þykir mér það sem ég hef þegar lesið lofa góðu um framhaldið.

Fimmtudaginn 26. nóvember fer fram kynning á bókinni hjá Forlaginu á Fiskislóð kl 16:30.
Ég verð þar.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)